Innlent

Eldur í hesthúsi

GS skrifar
Mynd/ Óskar.
Eldur kviknaði í hesthúsi að bænum Hellulandi í Hegranesi í Skagafirði á fyrsta tímanum í nótt, en svo vel vildi til að hestarnir voru allir úti þegar það gerðist. Slökkviliðið á Sauðárkróki kom fljótt á vettvang og logaði þá mikill eldur. Eftir tveggja klukkustunda slökkvistarf fór liðið aftur til síns heima, en klukkustund síðar gaus eldurin aftur upp, og eftir það var slökkviliðið á vettvangi til klukkan sjö í morgun. Hesthúsið stendur fjarri öðrum húsum og logn var í nótt þannig að önnur mannvirki voru aldrei í hættu. Húsið er stórskemmt ef ekki ónýtt, og eldsupptök eru ókunn.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×