Innlent

Einn handtekinn í Grafarvogi

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með umfangsmiklar aðgerðir í Veghúsum í Grafarvogi þessa stundina en mikið af bensíni er í einni af íbúðum í götunni, eftir því sem fréttastofa kemst næst.

Einn maður hefur verið handtekinn en sá hafði í alls kyns hótunum, að sögn lögreglu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út þar sem mikil sprengjuhætta var talin vera á vettvangi en allir bílar, nema einn, hafa verið afturkallaðir.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru fjórir lögreglubílar á svæðinu, tveir sjúkrabílar og einn slökkviliðsbíll, eins og áður sagði.

Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×