Götuvirði amfetamínsíns 250 milljónir króna 17. apríl 2012 18:30 Götuvirði efnanna er um 250 milljónir króna.
Hluti af þeim tæpu tíu kílóum af amfetamíni sem þrír Pólverjar reyndu að smygla hingað til lands um helgina var komið fyrir í sjampóbrúsum. Á föstudag var annar aðili tekinn með kókaín sem falið var í sjampóbrúsa en fleiri aðilar eru taldir tengjast því máli. Eftir því sem fréttastofa kemst næst er ekki talið að málin tvö tengist en tíu kíló af amfetamíni er með því mesta sem tollgæslan á keflavíkurflugvelli hefur stöðvað. Reyndar var hluti af efnunum, og tveir mannana, komnir langleiðina til Reykjavíkur í leigubíl þegar þeir voru stöðvaðir Mennirnir sem allir eru Pólverjar voru að koma frá heimalandinu þegar fíkniefnahundur tollgæslunnar merkti tösku eins þeirra en á honum fundust rúmlega þrjú kíló af amfetamíni. Efnin voru falin í sjampóbrúsum en fljótlega kom í ljós að maðurinn hafði verið í samfloti með tveimur öðrum. Allt var sett í gang, mennirnir voru stöðvaðir og aðilar frá tollgæslunni leituðu í töskum þeirra. Þegar allt var talið eru um tæp tíu kíló að ræða. Í kjölfarið var svo fjórði maðurinn handtekinn á heimili sínu. Efni sem tollgæslan hefur verið að ná undanfarið eru með styrkleika á bilinu 60 til í 80%. Ef við gefum okkur að þegar búið væri að drýgja þessi tíu kíló í fimmtíu á götunni og fimm þúsund krónur fást fyrir grammið. Þá er götuvirði efnanna um 250 milljónir króna. Á föstudag var síðan karlmaður stöðvaður í Leifsstöð með um 200 grömm af kókaíni en hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Athygli vekur að efnunum reyndi hann einnig að koma hingað til lands í sjampóbrúsa, en lögregla telur að fleiri aðilar séu tengdir því máli. Þá telur lögregla sig vita hvaða aðilar það séu en hún vinnur nú að því að yfirfara símagögn og hefur yfirheyrt þá tvisvar. Þá vekur einnig athygli að dómur Hæstaréttar sem staðfesti gæsluvarðhaldið í gær var tekin út af netinu í morgun, skömmu eftir að helstu vefmiðlar landsins birt frétt upp úr honum. Skrifstofustjóri Hæstaréttar hefur ekki svarað skilaboðum fréttastofu vegna málsins.
Tengdar fréttir Teknir með töluvert magn af amfetamíni Þrír karlmenn voru handteknir á Reykjanesbrautinni á sunnudagsmorgun með töluvert magn af amfetamíni fórum sínum. Mennirnir höfðu stuttu áður komið með flugvél frá Varsjá í Póllandi. 17. apríl 2012 09:49 Fjórir viðriðnir fíkniefnasmyglið Fjórir hafa verið handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamálsins sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þrír hafi verið úrskurðaðir í varðhald til 30. apríl en sá fjórði til 23. apríl. Mennirnir voru allir handteknir á sunnudagsmorgun. Einn var tekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar og tveir þegar þeir voru á leið til höfuðborgarinnar. Sá fjórði var síðan handtekinn heima hjá sér en hann er búsettur hérlendis. Mennirnir eru allir erlendir ríkisborgarar og höfðu þremenningarnir komið hingað til lands frá Póllandi. 17. apríl 2012 11:51 Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður Fleiri fréttir Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Sjá meira
Teknir með töluvert magn af amfetamíni Þrír karlmenn voru handteknir á Reykjanesbrautinni á sunnudagsmorgun með töluvert magn af amfetamíni fórum sínum. Mennirnir höfðu stuttu áður komið með flugvél frá Varsjá í Póllandi. 17. apríl 2012 09:49
Fjórir viðriðnir fíkniefnasmyglið Fjórir hafa verið handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamálsins sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þrír hafi verið úrskurðaðir í varðhald til 30. apríl en sá fjórði til 23. apríl. Mennirnir voru allir handteknir á sunnudagsmorgun. Einn var tekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar og tveir þegar þeir voru á leið til höfuðborgarinnar. Sá fjórði var síðan handtekinn heima hjá sér en hann er búsettur hérlendis. Mennirnir eru allir erlendir ríkisborgarar og höfðu þremenningarnir komið hingað til lands frá Póllandi. 17. apríl 2012 11:51