Allt óvíst um frekari stuðning við lögregluna BBI skrifar 2. ágúst 2012 16:32 Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, getur ekkert sagt til um hvenær von er á frekari fjárframlögum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur skilning á þeim orðum Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra, að of langt hafi verið gengið í niðurskurði hjá lögreglunni á landinu. Hann segir að nú sé botninum náð, ekki verði gengið lengra og vonast til að hér eftir liggi leiðin upp. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sagði í gær að lögreglumenn ættu að vera 700 en ekki 300. Hann sagði að yfirvöld hefðu vissulega skilning á því að gengið hefði verið of langt í orði. Hins vegar vantaði skilninginn á borði. „Ég geri ráð fyrir því að skilningur á borði þýði skilningur í krónum og aurum. Hingað til höfum við ekki haft þessar krónur og þessa aura," segir Ögmundur. „Þetta er vandinn sem allar stofnanir hafa þurft að súpa seyðið af, líka lögreglan." Hann vill þó koma því á framfæri að yfirvöld hafi reynt að sýna starfi lögreglunnar stuðning og nefnir þar sérstaklega baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Hann vonast auk þess til þess að hér eftir liggi leiðin upp á við.Þú getur ekkert sagt mér það núna hvort þú ætlar að bregðast við? spyr fréttamaður. „Nei, það get ég ekki," segir Ögmundur og veit því ekki hvenær von er á þeim „stuðningi á borði" sem Stefán Eiríksson kallaði eftir.
Tengdar fréttir Lögreglumenn ættu að vera 700 en ekki 300 Alltof langt hefur verið gengið í niðurskurði á löggæslu á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglustjóri. Á svæðinu ættu að vera vel yfir sjö hundruð lögreglumenn en ekki þrjú hundruð, ef við berum okkur saman við frændur okkar Norðmenn. 1. ágúst 2012 12:01 Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira
Lögreglumenn ættu að vera 700 en ekki 300 Alltof langt hefur verið gengið í niðurskurði á löggæslu á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglustjóri. Á svæðinu ættu að vera vel yfir sjö hundruð lögreglumenn en ekki þrjú hundruð, ef við berum okkur saman við frændur okkar Norðmenn. 1. ágúst 2012 12:01