Handbolti

Guðmundur: Þessi varnarleikur er okkar uppfinning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
„Ég er mjög stoltur af liðinu. Þetta var frábær leikur og frábær frammistaða hjá strákunum," sagði sigurreifur Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari eftir frækinn sigur Íslands á Svíþjóð í kvöld, 33-32.

„Þetta var erfiður leikur gegn frábæru liði. Þeir ætluðu að taka okkur með því að spila mjög hratt á okkur í byrjun og við fengum nokkur mörk á okkur eftir hraða miðju í upphafi leiksins. En við náðum að loka fyrir það og standa vörnina vel, auk þess sem að markvarslan var mjög góð í fyrri hálfleik og hraðaupphlaupin frábær. Sóknarleikurinn var líka frábær."

„Svo náðum við að byrja vel í seinni hálfleik og komast í góða stöðu. En svo misstum við þetta niður í lokin og höfðu ýmsir samverkandi þættir áhrif á það. Við fengum mjög lítinn tíma í sóknunum okkar og vorum þess fyrir utan mjög oft manni færri sem gerði málin mjög erfið fyrir okkur. Þá gengu þeir á lagið."

Hann segir oft erfitt að lesa þær línur sem dómarar leggja í leikjunum. „Því miður er þetta þannig að dómararnir sá einhverja hluti sem við sjáum ekki. Stundum virðist það tilviljunarkennt hvernig dómarnir falla," sagði hann.

Varnarleikur íslenska liðsins var á köflum gríðarlega góður og lagði í raun grunninn að þessum sigri. Það er einmitt þannig sem Guðmundur vill hafa það.

„Þetta er íslenska vörnin og okkar uppfinning. Við spilum þetta varnarafbrigði öðruvísi en flestir aðrir og erum stoltir af því. Við erum búnir að byggja upp þessa vörn og viðhalda henni í fjögur ár. Það hefur ekki heldur verið auðvelt að fá hana í gang vegna þess að leikmenn spila svo allt aðra varnartaktík hjá sínum félagsliðum."

„Það hefur því verið ögrandi verkefni að fá þessa vörn til að virka og núna finnst mér hún vera komin í gang."

Alexander Petersson fiskaði mikilvægan ruðning á Dalibor Doder þegar tæp mínúta var eftir af leiknum og það fór langt með að tryggja sigur Íslands í leiknum. „Það var stórkostlegur varnarleikur hjá Alex. Hann hefur áður sýnt okkur að hann býr yfir fágætum eiginleikum. Hann stöðvaði þetta hraðaupphlaup á stórkostlegan hátt. En allt liðið spilaði vel í kvöld. Aron var frábær, Guðjón Valur skoraði mikilvæg mörk og markið sem Ásgeir skoraði í lokin tryggði sigurinn. Það voru meistarataktar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×