Reykjanesið ruslakista rammaáætlunarinnar 28. apríl 2012 13:02 Þessa mynd tók Ellert Grétarsson í Helguvík.
Reykjanesið virðist vera ruslakista rammaáætlunarinnar og það virðist stefnt að því að gera Reykjanessskagann að einu samfelldu orkuvinnslusvæði. Þetta er meðal þess sem komið hefur fram á Náttúruverndarþingi sem hófst í morgun í Háskólanum í Reykjavík. Verður þar fjallað um stöðu rammaáætlunar og næstu skref í baráttunni fyrir verndun mikilvægra náttúruverndarsvæða. Meðal þeirra sem flutt hafa erindi á þinginu í morgun er Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari og stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands. „Ég kalla Reykjanesið ruslatunnu rammaáætlunar því í framtíðinni gætum við verið að horfa á allt að sextán virkjanir á svæðinu frá Reykjanestá og að Þingvallavatni. Staðan er þannig að Reykjanesskaginn verður nær allur gerður að samfelldu orkuvinnslusvæði. Þar með talin Reykjanessfólkvangur sem er eitt vinsælasta útivistarsvæðið í nágrenni við eitt mesta þéttbýlissvæði landsins. Þetta þykir okkur náttúruverndarfólki algerlega óásættanlegt," segir Ellert. Hann segir að hafa orðið fyrir miklum vonbrigði að athugasemdir náttúruverndarfólks hafi verið hunsaðar þegar kom að Reykjanesinu þótt mikil vinna hafi legið að baki þeirra og skýr rökstuðningur. "Það á fara í inn í fólkvang, sem á að heita friðaðlýstur, með stórfellda orkuvinnslu það er búið að teikna það upp með tilheyrandi mannvirkjagerð og línulögnum," segir Ellert. Hann segir að innan marka fólksvangsins gætu risið þrjú orkuvinnslusvæði, svo sem á Sveifluhálsi. „Sveifluhálsinn er nú eiginlega hjarta fólkvangsins en þar er verið að tala um allt 8000 fm orkuvinnslusvæði. Önnur svæði fara í bið eins og Trölladyngja og Austurengjahver en það er gefið til kynna að þau svæði fari einnig í nýtingu verði hin svæðin virkjanleg. Þannig það er nánast verið að gera skagann að einu samfelldu orkuvinnslusvæði." Um fleira verður rætt á þinginu. Til að mynda náttúruvernd og lýðræði verður rætt hvernig auka megi aðkomu og vald almennings að ákvörðunum um umhverfismál, náttúruvernd og stórframkvæmdir. Þá má nefna að eftir hádegi verða í fyrsta skipti veitt verðlaunin Náttúruverndarinn, viðurkenning fyrir ötula náttúruverndarbaráttu á Íslandi.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira