Kristján Þór: Til marks um „mikinn metnað“ hjá Tryggva Þór Magnús Halldórsson skrifar 14. október 2012 12:02 Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hvergi banginn við mótframboð Tryggva Þórs Herbertssonar í baráttunni um fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, fyrir alþingiskosningarnar í apríl á næsta ári. Kjördæmisþing flokksins stendur nú yfir í Mývatnssveit. Tryggvi Þór, sem er annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, ætlar að etja kappi við Kristján Þór, sem er oddviti flokksins í kjördæminu, í baráttu um fyrsta sætið á lista flokksins í alþingiskosningunum í apríl á næsta ári. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 á föstudaginn. Kristján Þór segir mótframboð ekki hafa komið sér sérstaklega á óvart, en hann segist jafnframt finna fyrir miklum stuðningi í kjördæminu. „Þetta verður barátta um oddvitasætið, og það er hollt og gott fyrir flokkinn," sagði Kristján Þór í samtali við fréttastofu í morgun. „Mér finnst þetta til marks um mikinn metnað hjá Tryggva Þór Herbertssyni," sagði Kristján Þór. Á kjördæmisþinginu, sem hófst í gær, hafa fimm tilkynnt þátttöku í prófkjörinu. Auk Tryggva Þórs og Kristjáns Þórs hefur Jens Garðar Helgason bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð tilkynnt um að hann sækist eftir fjórða til fimmta sæti, Bergur Þorri Benjamínsson á Akureyri sækist eftir fimmta sæti og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð sækist eftir þriðja sætinu. Reglur prófkjörsins, sem líklegt er að fari fram í janúar, verða ákveðnar á næstu vikum, en mestar líkur eru á því að kosið verði um sex efstu sætin á listanum. Enginn hefur enn lýst því yfir að hann sækist eftir öðru sæti á lista flokksins.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Sjá meira