Innlent

Gaslaust á metandælum N1 á Ártúnshöfða

Gaslaust er á öllum metangasdælum N1 á Ártúnshöfða og komast nokkrir ruslabílar ekki leiðar sinnar vegna þess, auk þess sem ökumenn fleiri bíla eru að lenda í vandræðum, að því er einn Þeirra tjáði fréttastofu nú fyrir stundu.

Hann sagði að það hafi verið einhver bilun í þessu kerfi í gær, en nú sé allt lokað. Fréttastofunni er ekki enn kunnugt um hvað veldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×