Stríðsbrúðurin líklega komin í leitirnar 1. september 2012 20:10 Radna E. Íshólm ásamt dóttur sinni Lou Ann Lemaster. Radna lést úr lungnakrabbameini árið 2002. Hún sagði fjölskyldu sinni aldrei frá þeim hryllingi sem hún mátti þola í fyrra hjónabandi sínum. mynd úr einkasafni
Dóttir íslenskrar konu, sem hvarf sporlaust á sjötta áratugnum, segist ekki hafa vitað um þann hrylling sem móðir hennar gekk í gegnum í fyrra hjónabandi sínu. Svo virðist sem Ragna Esther Gavin sé komin í leitirnar eftir sextíu ár. Ragna Esther hvarf sporlaust árið 1952. Sex árum áður flutti hún til Portland í Bandaríkjunum ásamt Larry Gavin, eignmanni sínum sem hún kynntist hér á landi á stríðsárunum. Fjölskylda hennar hefur reynt að komast að afdrifum hennar en án árangurs. Ættingjar hennar og lögreglu grunaði að ofbeldisfullur eiginmaður hennar hafi með einhverjum hætti komið að hvarfi hennar. Málið tók aðra stefnu á miðvikudaginn þegar íslensk kona, Lillý Valgerður Oddsdóttir, sem með hjálp leitarvéla, fann konu sem bar nafnið Radna E. Íshólm Wicker og lést árið 2002. Í samtali við fréttastofu í dag segir Lillý að hún hafi fundið konuna á óútskýranlegan hátt en hún hafi notað ímyndunaraflið þegar hún leitaði að Rögnu. Skyndilega hafi hún hitt á manneskju sem bar þetta nafn, Radna Íshólm, og henni hafi fundist grunsamlegt að barnabarn hennar héti Kristjana, rétt eins og móðir Rögnu Estherar, og að hún hafi verið fædd sama dag og Ragna Esther. Dóttir Rödnu, Lou Ann Lemaster, segist sannfærð um að Ragna og Radna séu ein og sama konan. Hún segir að móðir sín hafi aldrei rætt um fortíð sína og fortíð hennar hafi komið fjölskyldunni mjög á óvart. Það var ekki fyrr en Lou Ann var rúmlega þrítug sem móðir hennar sagði henni að hún hafi eignast tvö börn með öðrum manni. Það kemur heim og saman við sögu Rögnu Estherar, sem eignaðist tvö börn með Larry. Í samtali við fréttastofu segist hún sannfærð um að móðir sín hafa skipt um nafn á sjötta áratugnum og hafið nýtt líf í Alabama - og ekki sagt neinum frá fyrra hjónabandi sínu og þeim hörmungum sem hún gekk í gegnum. Á miðvikudaginn hafði Lillý Valgerður samband við hana og sagði henni frá grunsemdum sínum um að Ragna Esther, væri í raun Radna E. Íshólm. „Ég get aðeins sagt að mér brá við, ég varð glöð, spennt og döpur. Ég upplifði allt tilfinningalitrófið. Ég er einnig mjög stolt af henni að vita til þess að hún lét ekki þennan hrylling og það hræðilega sem þessi maður gerði henni hafa áhrif á sig til frambúðar og að hún var áfram yndisleg, umhyggjusöm og ástrík manneskja," segir Lou Ann.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira