Reyna greiningu á kúaveiru á Keldum 19. október 2012 06:00 Á Egilsstaðabýlinu greindust 33 af 69 kúm með mótefni sem bendir til sýkingar, en dýrin hafa ekki sýnt nein sjúkdómseinkenni. fréttablaðið/stefán
Sýni sem tekin voru á 40 kúabúum á Austurlandi vegna smitandi barkabólgu voru öll neikvæð að undanskildu endurteknu sýni á Egilsstaðabúinu, þar sem sýkingin greindist upphaflega, og úr einum grip á bænum Fljótsbakka sem einnig er á Fljótsdalshéraði. Gripurinn var gefinn frá Egilsstaðabúinu í febrúar. Eðli sýkingarinnar, eða stofn veirunnar, liggur ekki fyrir enn en á Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum er unnið að því að rækta veiruna til greiningar. Sýnatakan á öllum kúabúum á Austurlandi var gerð samkvæmt fyrirmælum frá Matvælastofnun en niðurstöður bárust á þriðjudag. Jafnframt bárust niðurstöður rannsókna á stroksýnum úr jákvæðum gripum á Egilsstaðabúinu, sem send voru til rannsóknar erlendis. Ekki tókst að einangra veiruna úr sýnunum, og því liggur eðli sýkingarinnar ekki fyrir nákvæmlega. Á Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum er verið að ganga frá sýnum frá öllum öðrum kúabúum á landinu og senda til rannsóknar í Svíþjóð, en Landssamband kúabænda hafði forgöngu um að öll bú hér á landi yrðu rannsökuð. Niðurstaðna þeirra rannsókna er að vænta í næstu viku. Á Keldum er einnig verið að gera tilraun til að rækta veiruna til frekari greiningar. Þar sem sjúkdómurinn hefur ekki greinst áður á Íslandi er unnið að rannsóknunum í nýrri öryggisrannsóknastofu Tilraunastöðvarinnar. Auður Lilja Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir á Matvælastofnun, segir að tilgangur allra þessara rannsókna sé að varpa skýrara ljósi á málið, en á grundvelli niðurstaðna þeirra verður tekin endanleg ákvörðun um aðgerðir. Hún segir að niðurstöður sýnatöku til þessa bendi eindregið til þess að sýkingin sé einangruð við Egilsstaðabúið, en dýrið sem greindist á Fljótsbakka byggi undir það. Eins að jákvætt sé að sýni úr mjólkurtanki á Fljótsbakka hafi verið neikvætt sem gefi von um að aðrir gripir á búinu séu ekki smitaðir. Blóðsýni verða hins vegar tekin af öllum gripum á Fljótsbakka til að ganga úr skugga um það. Auður Lilja staðfestir að ákvörðun hefur verið tekin um að öllum jákvæðum gripum verður fargað á býlunum tveim og hræ nýtt við greiningu á sýkinni. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort öðrum gripum á Egilsstaðabýlinu verði fargað. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Forystan sé búin að missa klefann Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Sjá meira