Þakklát fyrir að lifa 31. ágúst 2012 11:11 Nýtur lífsins og hvetur fólk til að draga úr stressi í sínu lífi. fréttablaðið/stefán
Ingibjörg Stefánsdóttir jógakennari er fertug í dag. Þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til Ingibjargar var hún nýbúin að taka ákvörðun um að halda upp á daginn. "Það er dæmigert fyrir mig að gera allt á síðustu stundu. Ég var búin að vera að pæla í því að halda upp á afmælið en svo ákvað ég bara í dag í sturtunni að gera eitthvað og bjóða heim til mín." Spurð hvort hún haldi yfirleitt upp á afmælið sitt segir Ingibjörg að það sé upp og ofan. "Ég geri það ekki alltaf en mér þykir samt mjög vænt um afmælisdaginn minn. Ég er svo þakklátt fyrir að eiga afmæli, þakklát fyrir að lifa. Mamma mín lést þegar hún var ekki nema 33 ára gömul þannig að ég get ekki annað en verið glöð með afmælisdaginn minn." Aldurskomplexar eru því skiljanlega víðs fjarri Ingibjörgu. "Ég er ekki á neinum einasta bömmer - enda er aldur svo afstæður í dag. Aldur er heldur ekki bara tala, heldur bæði andlegur og líkamlegur aldur." Ingibjörg er eigandi jógastöðvarinnar Yoga Shala og segir hún vera í nógu að snúast á þessum árstíma þegar haustið er að bresta á. "Mesta sprengjan hjá okkur er alltaf á haustin þó að það sé orðið mikið að gera allan ársins hring. Jóga hefur unnið sér varanlegan sess hjá Íslendingum, það mætir alls konar fólk í tíma og kennararnir okkar eru líka litríkur hópur." Ingibjörg hefur kennt jóga frá því að hún flutti heim frá Bandaríkjunum árið 1999 og segir hún alltaf hafa jafn gaman af því. "Ég elska að kenna jóga og svo fæst ég líka við næringarráðgjöf sem er mjög skemmtilegt." Auk anna í vinnunni stendur Ingibjörg líka í flutningum þannig að það er í nógu að snúast hjá henni. "Ég er að flytja í aðra íbúð í húsinu sem ég bý í. Ég á heima í húsinu sem ég ólst upp í og amma mín líka. Við erum að skipta um íbúð," segir Ingibjörg sem segir það hafa marga kosti að búa í sama húsi og amman. "Þetta er svona indversk stemming hjá okkur: allir saman. Og eldri dóttir mín þriggja og hálfs árs nýtur góðs af, hún fer alltaf upp til ömmu sinnar á morgnana og kúrir hjá henni í morgunsárið." Ingibjörg segist afar sátt við þann stað sem hún er á í lífinu. "Ég er bara alltaf að reyna að njóta lífsins út í ystu æsar. Mér finnst Íslendingar vinna alltof mikið, við eigum að vera meira með fjölskyldu og vinum. Það er of mikið stress í gangi," segir Ingibjörg sem hvetur fólk til að huga að lífsstíl sínum. "Það er alveg hægt að breyta um lífsstíl, við sjáum ótal dæmi um það hér í jógastöðinni."sigridur@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Sjá meira