Bakarinn í fríi en Ben Stiller hefur búlluna BBI skrifar 31. ágúst 2012 16:18 Mynd/GRV „
Ég er náttúrlega bara í sumarfríi af því Ben Stiller er búinn að taka bakaríið á leigu," sagði Geiri í Geirabakaríi á Borgarnesi þegar fréttastofa sló á þráðinn til hans. Ben Stiller gerði sér lítið fyrir og leigði bakaríið af honum til að umturna því og gera að pizza-staðnum Papa John's eins og sést á myndinni hér til hliðar. Þar verða nokkrar senur úr mynd Ben Stiller, The secret life of Walter Mitty, teknar upp. Þó Geiri viti hvað mun eiga sér stað á Papa John's í myndinni vill hann ekkert gefa upp um það enda bundinn þagnareiði. Sviðsmyndin er því sem næst tilbúin. Tökur fara fram á mánudaginn og þriðjudaginn í næstu viku. Geirabakarí mun síðan snúa aftur í sinni eðlilegu mynd á miðvikudaginn enda getur Geiri ekki hugsað sér að söðla um og starfrækja pizzastaðinn Papa John's til framtíðar, jafnvel þó öll umgjörð verði þegar komin upp. „Neinei, ég fær þetta bara í hendurnar á miðvikudaginn og get byrjað að baka aftur," segir Geiri. Geiri mun ekki verða starfsmaður sjálfur á Papa John's í myndinni. „Það hefði nú samt verið sniðugt að hafa okkur saman. Báðir svona litlir og huggulegir. Annars er ég huggulegri en hann finnst mér," segir Geiri. Kvikmyndaunnendur munu því missa af glæsilegu tvíeyki sökum þess að Geiri ákvað að nota tímann til að fara í sumarfrí frekar en að sniglast á settinu. Geiri segir að þessi leiga hafi átt sér langan aðdraganda. Ben Stiller og aðstoðarmenn hans ferðuðust um landið á síðasta ári í leit að tökustöðum og í kjölfar þess hófust þreifingar.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Sjá meira