Füchse Berlin tapaði fyrstu stigunum í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. september 2012 18:40 Dagur Sigurðsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlin tókst ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en Berlínarliðið gerði þá 27-27 jafntefli á heimavelli á móti á MT Melsungen. Füchse Berlin var búið að vinna fjóra fyrstu leiki sína á tímabilinu. Fabian Wiede hjá Füchse Berlin skoraði lokamark leiksins tæpum tveimur mínútum fyrir leikslok en hvorugu liðinu tókst síðan að skora sigurmarkið á æsispennandi lokasekúndum leiksins. Füchse Berlin náði frumkvæðinu strax í byrjun með því að skora þrjú fyrstu mörkin. Füchse var síðan 14-11 yfir eftir tæplega 25 mínútna leik en Melsungen skoraði þá fjögur mörk á rúmum tveimur mínútum og náði forystunni í leiknum. Melsungen var í framhaldinu með eins marks forystu í hálfleik, 16-15. Melsungen náði tveggja marka forystu um miðjan seinni hálfleik en annars var jafnt á flestum tölum í seinni hálfleik. Melsungen var þó undan að skora en Füchse Berlin tókst að tryggja sér stig í lokin. Konstantin Igropulo, eftirmaður Alexanders Petersson, skoraði 3 mörk fyrir Füchse Berlin í þessum leik en markahæstu menn liðsins voru þeir Ivan Nincevic og Denis Spoljaric með fjögur mörk hvor. Patrik Fahlgren var markahæstur hjá Melsungen með sex mörk.
Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Óvissa í Indlandi lætur City selja Fótbolti Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Sjá meira