Fjárhagur framhaldskólanna Ólafur Haukur Johnson skrifar 15. ágúst 2012 06:00 Umræða hefur verið í fjölmiðlum síðustu daga um fjárhag framhaldsskólanna. Stjórnendur þeirra hafa kvartað undan þröngri stöðu og undir þau sjónarmið hefur verið tekið af ráðherra. Látið er eins og að staðan sé verri en þolanlegt er og að nú þurfi að auka útgjöld til skólanna. Staðan er ekki svona slæm að mínu mati og ágætir kostir í stöðunni. Nú er tækifæri til að endurskipuleggja skólastarfið með það í huga að bæta það, auka aga og stytta námstímann. Þannig má auka skilvirkni nemenda og draga úr kostnaði. Svigrúm til að gera þetta er vissulega til staðar. Víst er það svo að skólarnir og stjórnendur þeirra hafa oft haft meira fé til að gera það sem þá langar til, en það á við flesta í þjóðfélaginu. Fram hjá hinu verður ekki horft að niðurskurður til framhaldsskólanna hefur verið minni en víðast annars staðar þrátt fyrir að þar sé svigrúmið og hagræðingarmöguleikarnir sennilega meiri en hjá flestum öðrum. Vandinn er sá að stjórnendur og starfsfólk skólanna hafa ekki beinan hag af hagræðingu og hún kostar vinnu og er sjaldnast gleðigjafi. Því þarf að búa til hvata í kerfinu fyrir þá sem standa fyrir breytingunum. Fyrir ráðherra gildir það sama. Því fylgir óánægja og aukin vinna að hagræða. Fram undan er einstakt tækifæri til að taka rekstur og skipan skólanna til endurskoðunar. Tel ég að nýta megi fjármuni ríkisins betur en gert er. Einnig finnst mér slæmt að horfa upp sóun á tíma og fjármunum nemenda framtíðarinnar verði engu breytt. Nauðsynlegt er að nýta það tækifæri sem nú er til endurskipulagningar skólastarfsins, bæði í grunnskóla og framhaldsskóla, þannig að kostnaðurinn minnki. Stefna þarf að einfaldari og skipulagðari skóla sem lýkur við 18 ára aldur eins og hjá flestum þjóðum en ekki 20 ára eða enn seinna eins og hér er. Þar liggja gríðarleg fjárhagsleg tækifæri sem verður að nýta. Greinarstúfur þessi verður vafalítið túlkaður af mörgum sem leiðindi af minni hálfu vegna þeirrar stöðu sem nú er hjá Menntaskólanum Hraðbraut. Ekki er það hvati minn að greinaskrifum þessum. Ástæðan fyrir því að ég rita þetta er eingöngu sú að skólamál eru mér mikið hjartans mál og því er mér mikilvægt að leggja málinu lið. Hinu er þó ekki að leyna að ég tel að staða þessara mála væri önnur og betri ef Menntaskólinn Hraðbraut hefði fengið að starfa áfram af krafti. Þá væri vandinn við að finna umsækjendum skólavist minni en nú er. Einnig er skólinn án nokkurs vafa hagkvæmasti framhaldsskóli landsins. Ekki aðeins er skólinn hagkvæmastur vegna þess að nám til stúdentsprófs er þar mun styttra en í öðrum skólum, heldur var ráðherra einnig boðið að greiðsla til skólans fyrir hvern nemenda yrði lægri en til annarra skóla. Þrátt fyrir þetta synjaði ráðherra Hraðbraut um nýjan þjónustusamning. Það hlýtur að vekja upp spurningar nú. Þetta gerist á sama tíma og fjölmargir umsækjendur um skólavist hafa ekki fengið inni í skólunum. Að fá ekki inni í skóla er ekki aðeins sár reynsla, því fylgir mikið tjón fyrir þá nemendur sem í hlut eiga. Á meðan við erum flest sammála um að í menntun felist ávinningur fyrir þjóðfélagið allt hljótum við einnig flest að vera sammála um að svona stjórnun þessara mála þýði mikið fjárhagstjón fyrir þjóðfélagið. Við þurfum að sameinast um að bæta þau mál. Til þess er ég reiðubúinn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun