Troðslustelpan og félagar töpuðu ekki leik í vetur | Baylor meistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2012 10:15
Brittney Griner og félagar hennar í Baylor tryggðu sér bandaríska meistaratitilinn í kvennaháskólakörfuboltanum í nótt þegar þær unnu 19 stiga sigur á Notre Dame í úrslitaleiknum. Baylor vann alla 40 leiki tímabilsins og varð sjöunda kvennaliðið sem nær því en það fyrsta síðan að liðin fóru að leika 40 leiki. Brittney Griner er þekktust fyrir að troða boltanum í körfuna sem hún hefur gert nokkrum sinnum í vetur en í úrslitaleiknum var hún með 26 stig, 13 fráköst og 5 varin skot. Griner kveikti í áhorfendum fyrir leikinn með því að setja á svið smá troðslusýningu í upphitunni. Þetta var annar meistaratitill Baylor en kvennalið skólans vann einnig árið 2005 og þá einnig undir stjórn Kim Mulkey.„Hennar verður minnst í sögunni sem einn af bestu stóru leikmönnunum sem hafa spilað leikinn. Ég er svo ánægð að hún náði þessum hring," sagði Kim Mulkey eftir leikinn. Brittney Griner fagnaði titlinum eins og óð væri, dansaði við Robert Griffin III, besta leikmann háskólafótboltans, og tók þjálfara sinn síðan í skamma stund upp á aðra öxlina. „Ég á eftir að muna eftir þessari stundu alla mína ævi," sagði Griner. Það er hægt að sjá Brittney Griner troða í leik með því að smella hér fyrir ofan.
Körfubolti Mest lesið Sigursælasti ökuþór NASCAR látinn langt fyrir aldur fram Sport Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Handbolti Fékk að vita af skiptunum klukkan tvö í gær Íslenski boltinn Mikil óvissa og engin áhætta tekin með Sveindísi Fótbolti Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Handbolti Viktor Bjarki fór meiddur af velli skömmu fyrir landsleik Fótbolti Enginn Evrópubolti hjá Brynjólfi á næsta tímabili Fótbolti „Leið aldrei eins og við værum að sigla þessu heim“ Íslenski boltinn Neuer snýr aftur og verður aðalmarkmaðurinn á HM Fótbolti Úlfur Ágúst sleit liðband Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Baldur tekur við Álftnesingum Áfall fyrir Grindavík: Kane og Óli meiddir og ekki með í kvöld Vilja ekki sjá annað lið fagna titlinum í Síkinu, aftur „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Tókst takmarkið eftir stórskemmtilega seríu Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík „Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 95-70 | Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Bjarni Guðmann framlengir í Garðabæ Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Sjá meira