Matarslagur í Hafnarfirði: "Við erum stolt af matnum okkar“ 6. nóvember 2012 15:40 Mötuneyti. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint. „
Ég fagna umræðu um skólamáltíðirnar," segir Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar ehf., sem sér um að elda mat fyrir grunnskólanemendur, kennara og bæjarstarfsmenn í Hafnarfirði. Stjórn félags grunnskólakennara í Hafnarfirði er ósátt við ákveðinn tvískinnung sem viðgengst hjá bænum eins og Fréttablaðið greindi frá í dag. Þar kom fram að starfsfólk á bæjarskrifstofu Hafnarfjarðarbæjar fengju annan mat en kennarar, sem segja hafa þurft að borða skólabjúgu með pakkamús á sama tíma og starfsmenn bæjarskrifstofunnar fengu ávaxtafylltan lambaframpart með sætkartöflusósu og súpu. Þá gagnrýndu kennarar einnig að þeir þyrftu að láta sér nægja upphitaðan skólamat auk þess sem þeir þyrftu að standa í biðröðum með nemendum á meðan þeir biðu eftir matnum. Kröfðust þeir þess að fá sama mat og aðrir bæjarstarfsmenn og að hann yrði afhentur inni á kennaraskrifstofu. Jón bendir á að bærinn hafi gert ákveðinn þjónustusamning við fyrirtækið. „Þetta er því spurning um að semja upp á nýtt fyrir kennara," útskýrir Jón. Núna hljóðar samningurinn upp á það að kennarar borði í sama mötuneyti og börnin. Í Fréttablaðinu í dag kom fram að það hefði verið ákveðið á bæjarráðsfundi að fela Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur bæjarstjóra að ræða við kennara um málið. Þegar Jón er spurður um þann áfellisdóm, ef svo má að orði komast, varðandi skólamatinn að mati kennara, svarar hann því til að fyrirtækið sé með miðlægt eldhús þar sem maturinn er mismikið eldaður. Hann er þó ávallt fulleldaður í mötuneyti skólans, eins og hann orðar það sjálfur. Meðal annars sé fiskurinn ávallt eldaður frá grunni. Hann áréttar þó að skilyrði séu ströng og að næringarfræðingur og fleiri sérfræðingar starfi hjá fyrirtækinu og að heilsa barna sé ávallt höfð í forgangi. „Við erum stolt af gæðum matarins sem við búum til," bætir Jón við. Hann bendir einnig á að börnin fái skólabjúgu annan hvern mánuð og að það sé meinhollt eins og allir vita.
Tengdar fréttir Kennarar leiðir á skólabjúgum Félag grunnskólakennara í Hafnarfirði segir bæinn mismuna starfsmönnum. Á bæjarskrifstofunni sé tvíréttað í hádeginu en kennarar bíði í röð með nemendum til að fá mat miðaðan við bragðlauka barna. 6. nóvember 2012 07:00 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira
Kennarar leiðir á skólabjúgum Félag grunnskólakennara í Hafnarfirði segir bæinn mismuna starfsmönnum. Á bæjarskrifstofunni sé tvíréttað í hádeginu en kennarar bíði í röð með nemendum til að fá mat miðaðan við bragðlauka barna. 6. nóvember 2012 07:00