Óupplýstir spekingar í Silfrinu Ástþór Magnússon skrifar 11. maí 2012 18:10 Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentmiðils landsins til fjölda áratuga afhjúpar að hann hefur ekki kynnt sér stefnumál forsetaframbjóðanda síðastliðin 16 ár! Furðulegt er að í helsta pólitíska umræðuþætti RÚV eru dregnir fram hinir ýmsu spekingar, m.a. menn fyrri kynslóða á eftirlaunum að fjalla um forsetaembættið og væntanlegar forsetakosningar, en frambjóðendur sjálfir útilokaðir frá þátttöku. Ég tek undir þau orð Styrmis Gunnarssonar fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins að það sé úrelt fyrirkomulag að einn maður sitji á Bessastöðum með alræðisvald í því hvort einstök mál fari í þjóðaratkvæði. Hinsvegar er Styrmir illa upplýstur þegar hann íhugar að leggja ætti niður forsetaembættið. Það væri álíka óviturlegt og að leggja niður útgerðina og hætta að veiða fiskinn í sjónum. Með því að Virkja Bessastaði gæti forsetaembættið lagt hornstein að nýjum atvinnuvegi sem gæti veitt þúsundum Íslendinga góð störf í framtíðinni, aflað milljarðatekna fyrir þjóðarbúið og virkað sem öflug vítamínsprauta í vaxandi ferðaþjónustu landsmanna. Atvinnupóllinn í hugmyndafræðinni Virkjum Bessastaði er að skilgreina Ísland sem land heimsfriðar. Að á Íslandi verði í framtíðinni aðsetur alþjóðastofnanna sem vinna að friðar- og lýðræðisþróun. Ísland er einstakt að því leyti að hér hefur ríkt friður í nærri þúsund ár og landsmenn hvorki borið vopn né rekið skipulagðan hernað. Það er þessi arfleifð sem hefur fyllt menn erlendis hrifningu hvar sem ég hef kynnt Ísland sem land friðarins. Við sjáum nú þegar árangur af þessu starfi. Hingað komu heimsþekktir erlendir fræðimenn, m.a. höfundur handbóka Sameinuðu Þjóðanna að friðarsamningum, til að tala fyrir hugmyndum mínum um að virkja forsetaembættið en fengu ekki áheyrn fjölmiðla. Einnig var Ísland nýlega valið sem heimaland friðarsúlu og minnismerkis um John Lennon. Nú er bara að halda áfram og ná almennri samstöðu þjóðarinnar um að forseti Íslands virki Bessastaði. Lýðræðispóllinn í hugmyndafræðinni Virkjum Bessastaði er að færa valdið til fólksins í landinu með beinu lýðræði. Að forsetinn nýti málskotsréttinn með skipulögðum hætti til að leiða þjóðina úr úreltri hugmyndafræði gömlu fjórflokkanna í nútímalegra og beinna lýðræðisform þar sem þjóðaratkvæði verða eðlilegur þáttur í lýðræðinu. Þjóðaratkvæðagreiðslur um stærri deilumál eru virkasta formið til að brúa gjána milli þings og þjóðar til framtíðar og koma á sáttum í samfélaginu. Með orðum sínum í Silfri Egils afhjúpar Styrmir fálæti og þekkingarleysi. Það er ekki að ástæðulausu að ég hef deilt á fjölmiðla fyrir óvandaða umfjöllun í aðdraganda forsetakosninga. Hafi menn sem hafa atvinnu af því að fylgjast með þjóðmálaumræðu ekki meðtekið kjarnann í hugmyndafræðinni Virkjum Bessastaði í gegnum 16 ára baráttu forsetaframbjóðanda er það lýsandi dæmi um hvernig fjölmiðlunin hefur brugðist. Dapurlegt er að horfa uppá íslenska fjölmiðlamenn tala af innsæi um forsetakosningar erlendis en eins og illa upplýstir bakkabræður um sama málefni í heimalandinu. Gæti verið að Egill Helgason sé að gera mistök með því að útiloka forsetaframbjóðendur frá því að koma í Silfrið að ræða stefnumál sín og skýra hversvegna þau eigi erindi við þjóðina? Með því að sniðganga frambjóðendur í helsta umræðuþætti fjölmiðlanna er verið að viðhalda stöðnun forsetaembættisins og snúa kosningunum uppí hálfgerða fegurðarsamkeppni í stað þess að fjalla um raunverulega innviði embættisins og frambjóðenda. Það er grafalvarlegt mál ef fjölmiðlafólk kemst upp með að blinda kjósendur með innihaldslausri froðu til að hertaka Bessastaði og byggja þar rólur og sandkassa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda Guðjón Heiðar Pálsson, Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Skoðun Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski skrifar Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda skrifar Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Sjá meira
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun