Guðjón: Það var væntanlega lítil vatnsnotkun á Íslandi í lok leiksins Henry Birgir Gunnarsson í Vrsac skrifar 18. janúar 2012 22:08 Guðjón hefur verið öruggur á vítalínunni.
Fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var kampakátur eftir sigurinn á Noregi í kvöld sem var í meira lagi dramatískur. "Ég geri ráð fyrir að vatnsnotkunin á Íslandi hafi verið lítil sem engin síðustu tíu mínútur leiksins miðað við þær rannsóknir sem hafa verið gerðar á stórmótum. Það hefur líklega náð hámarki í kvöld," sagði glaður Guðjón. "Við lendum í ákveðinni keðjuverkun í fyrri hálfleik því við erum alltaf að sækja lengra og lengra út. Þeir skora í hverri sókn og ég tek ekkert af þeim því þeir voru að spila vel. Þegar þeir skora svona mikið fyrir utan förum við ósjálfrátt að færa okkur framar á völlinn. Við lentum í vítahring sem erfitt var að komast út úr," sagði Guðjón sem ræddi málin við Björgvin markvörð í hálfleik. "Ég sagði honum að mér væri skítsama hvernig en ég bað hann vinsamlegast um að gera eitthvað í markinu svo við ættum möguleika á að vinna þennan leik. Það var æðislegt að sjá hann stíga upp. Þá kom sjálfstraustið í vörnina um leið og það gerir gæfumuninn í lokin," sagði Guðjón sem missti aldrei trú á verkefninu. "Við höfum lent í ótrúlegri leikjum en þessum. Það var æðislegt að vera í þessu liði. Það sem er best er að við hættum aldrei að trúa, sama hvað gengur á. Við trúum alltaf hver á annan og stöndum saman. Að mínu mati gerði það útslagið í lokin. Það var ekkert stress, öskur eða læti út í hver annan. Hver og einn tók bara til í hausnum á sjálfum sér og uppfyllti sitt hlutverk."
Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira