OracleStudium (áður Stoðkennarinn.is) biðlar til embættismanns Starkaður Barkarson skrifar 9. október 2012 06:00 Ég hef verið haldinn þeirri stórfurðulegu blindu seinasta áratug að halda að góðir hlutir seldu sig sjálfir og oftast fyrir það verð sem þeim ber. Og þrátt fyrir að flest mælti á móti þessari staðföstu trú minni þá var það ekki fyrr en að snilldarbragð þeirra hjá Skýrr – nú Advania – lak út, að ég áttaði mig á því að ég hef verið á rangri braut allan þennan tíma. Það er í raun hægt að selja meingallað kerfi til óánægðra notenda aftur og aftur á uppsprengdu verði. Galdurinn er hins vegar sá að hitta á réttan embættismann. Nú er ég ekki nógu kunnugur embættismannakerfi ríkisins og man í svipinn ekki eftir neinum frænda né frænku sem vinnur hjá ríkinu, þannig að ég ákvað að biðla til þessa eina rétta embættismanns á síðum Fréttablaðisns. Áður en ég legg fram tilboð mitt vil ég þó vara þig við að kerfið sem ég ætla að bjóða þér er alls ekki meingallað. Það hefur (þrátt fyrir fjársvelta og vanbúna skóla) verið í notkun í íslensku skólakerfi í hátt í áratug og virðist bara virka nokkuð vel. Og það er kannski óþarflega einfalt í notkun og laust við allan véfréttastíl því við höfum ekki þurft að heimsækja skóla sérstaklega til að kenna starfsfólki eða nemendum á það. En við gætum auðveldlega bætt við einhverjum flóknum fídusi ef því er að skipta. Tilboð: Allir nemendur í 7.-10. bekk fá aðgang að námsefni Stoðkennarans (www.stodkennarinn.is). Innifalið er aðgangur að stafsetningu, málfræði, bókmenntum, stærðfræði, dönsku, ensku og ritþjálfa. Einnig fá áhugasamir foreldrar frían foreldraaðgang og að sjálfsögðu fá kennarar þeirra aðgang svo þeir geti fylgst með einkunnum og kynnt sér efnið. Ég lá lengi yfir þessu innleiðingarhugtaki. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg hvernig það getur verið flókið eða kostnaðarsamt að innleiða kerfi sem virkar og er notandavænt. Notkunarleiðbeiningar geta hæglega verið aðgengilegar á vefnum sjálfum í formi PDF-skjala og myndbanda, þannig að starfsmenn ættu ekki að þurfa að vera á þönum milli landshluta með tilheyrandi kostnaði. En það lítur kannski betur út að hafa sannfærandi innleiðingarlið í samningi okkar þannig að ég legg til að við setjum 107.050 kr. þar til skrauts. Mér skilst reyndar að þessar tölur eigi það til að margfaldast í höndum ykkar. Hvað varðar mánaðarleg gjöld legg ég til um 20 þúsund krónur á skóla, að meðaltali, á mánuði. En þér er velkomið að hækka verðið ef þér finnst það kjánalegt. Ég hálf fyrirverð mig fyrir þessu lágu upphæðir en eins og áður hefur komið fram er vara mín hvorki nógu gölluð né ónotendavæn til að fara fram á mikið meira. Og svo er þetta auðvitað bara ætlað skólafólki og sýslar að mestu með þekkingu og kunnáttu en ekki debet og kredit og því varla hægt að búast við of miklu. Svar sendist á stodkennarinn@stodkennarinn.is merkt sem Féfrétt. Starkaður Barkarson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar