Undanþágur inni í myndinni fyrir Nubo Erla Hlynsdóttir skrifar 9. október 2012 18:53 Mynd/Baldur
Í drögum að samningi sveitarfélaga á Norðurlandi við fyrirtæki Huang Nubo kemur fram að hægt er að veita ýmsar undanþágur til nýtingar auðlinda. Fréttastofa hefur þessi óbirtu drög undir höndum. Einkahlutafélagið GáF var stofnað í sumar af sveitarfélögum á Norðurlandi „til að undirbúa kaup, eignarhald og leigu" á hluta landsins Grímsstaða á Fjöllum. Þetta er félagið sem vill kaupa landið og leigja áfram til Zhongkun Grímsstaða, fyrirtækis Nubo. Fréttastofa sagði frá því í gær að drögum að samningum milli þessara félaga hefði verið lekið og hefur fréttastofa fengið afrit af þeim. Zhongkun hyggst samkvæmt samningsdrögum reisa hótel og byggja upp golfvöll, meðal annarrar þjónustu við erlenda ferðamenn. Í drögum að afnotasamningi vegna segir að í skjóli eignarréttar GáF veiti það Zhongkun ýmis réttindi, svo sem rétt til hagnýtingar á vatni sem finnst á landinu, með fyrirvaranum: „Ekki er um að ræða nýtingu vatns umfram þörf rekstrar og ekki til útflutnings eða sölu nema með samþykki GáF ehf. " Þegar kemur að nýtingu á auðlindum í jörðu, segir: „Ekki er um nýtingu að ræða umfram þörf uppbyggingarinnar og ekki til útflutnings eða sölu nema með samþykki GáF ehf. " Þá eru fyrirvarar vegna nýtingar jarðhita á landinu: „Ekki er um að ræða nýtingu jarðhita umfram þörf rekstrar sem Zhongkun Grímsstaðir ehf. verður með á jörðinni og ekki til sölu til þriðja aðila nema með samþykki GáF ehf. " Eignarhaldsfélagið er skipað fimm stjórnarmönnum og tveimur til vara. Í drögunum er fjallað um framsal afnotaréttar, og að fengnu samþykki GáF er Zhongkun Grímsstöðum frjálst að framselja afnotarétt af landinu. Í samþykktum vegna stofnunar GáF er opið fyrir eigendaskipti á hlutum í félaginu. Þá er ekkert sem bannar sölu á félaginu í heild til einkaaðila. Þar er einnig tekið sérstaklega fram að samþykktunum megi breyta á lögmætum aðalfundi, eða aukafundi með tveimur þriðju hlutum greiddra athkvæða. Fréttastofa fjallar frekar um þetta mál á morgun.
Tengdar fréttir Samningsdrög vegna Grímsstaða komin í hendur ótengdra aðila Drögum að samningi við Huang Nubo vegna Grímsstaða á Fjöllum var lekið til ótengdra aðila. Talsmaður Nubo segir þennan trúnaðarbrest alvarlegt mál. 8. október 2012 19:33 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira
Samningsdrög vegna Grímsstaða komin í hendur ótengdra aðila Drögum að samningi við Huang Nubo vegna Grímsstaða á Fjöllum var lekið til ótengdra aðila. Talsmaður Nubo segir þennan trúnaðarbrest alvarlegt mál. 8. október 2012 19:33