Fíkniefnahundurinn Nelson kom upp um smyglið Boði Logason skrifar 29. ágúst 2012 11:53
Pólskir háskólamenntaðir karlmenn og einn leikskólakennari neita að hafa skipulagt umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins fyrr á þessu ári. Mennirnir eru ákærðir fyrir að smygla 8,5 kílóum af amfetamíni í sjampóbrúsum. Mennirnir komu allir með flugi frá Varsjá í Póllandi í apríl síðastliðnum. Þeir sátu þó á víð og dreif um vélina, og sögðu fyrir dómara í morgun, að þeir hefðu ekki vitað af veru hvors annars. Þeir gengu á sitthvorum tíma í gegnum eftirlit tollgæslunnar. Tollvörður bað einn af mönnunum að setja tösku sína í gegnum gegnumlýsingartæki en ekkert athugavert fannst þar. Stuttu síðar var annar af mönnunum stöðvaður af öðrum tollverði, þar sem fíkniefnahundurinn Nelson merkti að fíkniefni væru í töskunni. Sá kom fyrir dómara og sagðist hafa skoðað innihald töskunnar. Í snyrtitösku sem þar var, fann tollvörðurinn 750 gr. sjampóbrúsa, sem var mjög harður viðkomu. Hann sagði að við vigtun hafi brúsinn reynst vera um eitt kíló að þyngd - það hafi honum fundist óeðlilegt. Við nánari skoðun reyndist brúsinn vera fullur af amfetamíni. Þegar þarna var komið við sögu kom tollvörðurinn, sem hafði skoðað fyrstu töskuna sem slapp í gegn, og sagði að innihald taskanna væri keimlíkt. Tollverðir fóru því fyrir utan flugstöðina til að athuga hvort maðurinn sem slapp í gegn væri þar ennþá. Leigubílstjórar sem stóðu við leigubílaröðina sögðu að hann hafi farið upp í leigubíl ásamt öðrum manni. Tollvörðurinn hringdi því í leigubílstjórann sem staðfesti að tveir menn væru í aftursætinu hjá sér og þeir hefðu pantað akstur á Grand hótel í Reykjavík. Lögreglan stöðvaði svo leigubílinn í Kópavogi, og voru mennirnir tveir handteknir. Þeir reyndust báðir vera með eins tösku og sá sem var upp á flugvelli í haldi tollvarða. Amfetamín var í þeim öllum, og allt var það í sjampóbrúsum. Lögreglumaður sem kom fyrir dómara sagði að töskurnar þrjár hefðu allar verið mjög svipaðar. Nærbuxurnar í þeim væru allar af sömu gerð, sem og annar fatnaður. Þá hafi biblíur verið í þeim öllum. Mennirnir gáfu skýrslu fyrir dómara í morgun með hjálp túlks. Þeir neituðu því allir að hafa skipulagt smyglið. Þeir hafi einungis fengið töskurnar afhentar í Póllandi og fengið skipanir frá ónafngreindum mönnum að koma þeim til Íslands. Ástæðan fyrir því að þeir hafi slegið til hafi verið meðal annars fjárhagsvandræði og skjótfenginn gróði. Þeir hafi ekki getað hætt við vegna hótana frá skipuleggjendunum, en hótanirnar hafi meðal annars beinst að fjölskyldum þeirra. Spurðir hvort að þeir hafi farið með töskurnar án þess að vita um innihald þeirra, sögðu þeir að þeir hafi fengið þau tilmæli að ekki mætti kíkja ofan í töskurnar og alls ekki tala um ferðina til Íslands við neinn. Mennirnir koma allir frá litlum bæ í Póllandi þar sem tæplega sex þúsund manns búa. Tveir af þeim játuðu að hafa komið áður til Íslands, en það var síðasta sumar. Allir sögðu þeir sjá mjög eftir smyglinu og þeim liði rosalega illa að sitja í fangelsi. Amfetamínið er undir meðaltali að styrkleika en pakkningarnar sem þeir voru með voru allar mjög svipaðar. Aðalmeðferð málsins heldur áfram í byrjun september, en ekki var hægt að taka skýrslu af öllum vitnum nú. Þegar henni er lokið er það dómara að ákveða hvort þeir verða dæmdir fyrir smygl á 8,5 kílói af amfetamíni, það er að segja að hafa skipulagt innflutninginn, eða einungis fyrir það magn sem hafi fundist í farangri þeirra, eða um tvö og hálft kíló hver.
Tengdar fréttir Borguðu 50 evrur þrátt fyrir handtöku "Ég fékk bara hnút í magann yfir því að ég væri með menn sem stæðu í ólöglegum innflutningi,“ sagði leigubílstjóri á áttræðisaldri sem kom fyrir dómara í morgun í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl hingað til lands í apríl síðastliðnum. 29. ágúst 2012 12:26 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Borguðu 50 evrur þrátt fyrir handtöku "Ég fékk bara hnút í magann yfir því að ég væri með menn sem stæðu í ólöglegum innflutningi,“ sagði leigubílstjóri á áttræðisaldri sem kom fyrir dómara í morgun í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl hingað til lands í apríl síðastliðnum. 29. ágúst 2012 12:26