Hryðjuverk yfirvofandi: Björgum Nasa og sóltorgi Ingólfs Þórunn Erlu og Valdimarsdóttir skrifar 28. júní 2012 06:00 Ríkur maður keypti hús við Ingólfstorg og Landsímahúsin og vill selja verktökum dýrt til að byggja tröllaukið hótel, líklega með á fjórða hundrað herbergi. Á hlaðinu við dúkkudómkirkjuna og dúkkuþinghúsið okkar, takk. Gjörið svo vel. Jafnstórt og Hótel Saga plús tvær Hótel Borgir. Nú rétt fyrir sumarfrí munu koma tillögur að steypuhlunki, þegar allir verða farnir og enginn les blöðin. Veslings litla Reykjavík, fátæk eftir hrun, getur ekki bjargað málinu nema kaupa húsin fyrir milljarða sem eru ekki til. Við skiljum öll klemmu Besta flokksins, sem sannarlega er vel meinandi. Nú verður samfélag fátæka lýðveldisins að bregðast við og setja lög verndunar, vernda það sem eftir er af heildarmynd gamla tímans og eina danssal miðbæjarins og eina upprunalega skemmtihús og samkomusal Kvosarinnar. Gamaldags tónleikasal með mikla sögu. Vernda sólfermetra miðsvæðis okkar til samkomuhalds til næstu alda. Útsetja ný sólskinslög og minjalög, afturvirk og framvirk. Gera minjahúsin óseljanleg til niðurrifs eða flutnings fram á sóltorgið okkar. Þið þarna í borgarstjórn kunnið trixin. Taka eignarnámi á eðlilegum prís, eftir að löngu úrelta deiliskipulaginu frá 1988 hefur verið kippt úr sambandi. Málið er stórt, hlutfalli heimsins minnstu dómkirkju og þinghúss miðað við umhverfi er ógnað. Steypurisinn sem íhugar að hlamma sér niður við elstu hús Reykjavíkur og ýta húsum fram á Ingólfstorg skemmir líka torgmynd Austurvallar og stækkar skugga þangað. Eyðilegging miðborgarhúsa átti sér stað víða í Vesturheimi á sjöunda áratug síðustu aldar, og er talin skandall. Nú rúmum fjörutíu árum síðar er enn verið að vinna í þessum anda hér. Miðbæjarmarkaðurinn skyggir síðan á þessum tíma á elstu hús Reykjavíkur við Aðalstræti og í Grjótaþorpi og nú stendur til að bæta við steypurisa sem nær frá smáhýsi við Austurvöll alla leið að Aðalstræti. Þetta er tímaskekkja og voði. Hryllingur í dúkkumiðbæ þar sem götur eru mjóar og sólin hér 64° í norðri er mest allt árið lágt á lofti. Myrkur og skuggi eru óvinir í landi sem hangir í heimskautsbaugi. Allir sem koma í miðbæinn skynja gæðin sem felast í birtunni og skjólinu á okkar stóra Austurvelli. Svipuð lífsgæði eru á Ingólfstorgi sem skartar mannlífi árið um kring og allir elska sem eiga dagleið um. Skugginn af nýja tröllhótelinu og húsunum sem á að skjóta fram á Ingólfstorg verður stór á Jónsmessu svo ekki sé talað um skammdegið. Skelfileg tilhugsun er að Hótel Vík og húsið gegnt elsta húsi bæjarins fari fram á Ingólfstorg. Sem sagnfræðingur og íbúi fullyrði ég að leifar nítjándu aldar húsasögu og rými borgarbúa til framtíðar skaðist glæpsamlega við þessa ráðagjörð. Salur Nasa-Sigtúns-Sjálfstæðishússins-Kvennaskólans sem snýr framhlið að Austurvelli er eina innréttingin sem eftir er í gömlum reykvískum samkomuhúsum, fyrir utan kaffihús Mokka. Innviðir Naustsins, Hótels Borgar, Hressingarskálans, Kaffi Traðar og Reykjavíkur apóteks hurfu – svo mætti lengi telja. Enga innanhússsögu má lengur lesa úr innréttingum opinna staða. Borgir stæra sig af veitingahúsum sem standa óbreytt og vekja upp tilfinningu fyrir liðinni tíð – nema Reykjavík. Hún er svo mikill kjáni, þessi elska. Ráðamenn, íhugið ábyrgðina gagnvart framtíðinni þegar þið gerið mistök af þessu tagi! Uppgjör framtíðar verður sárt, eins og eftir mistökin með Fjalaköttinn. Látum hótel í risastóra Landsímahúsinu nægja. Nóg verður um þá umferð, rútuprump á Alþingi og rennerí. Miðbærinn okkar er ekki bara fyrir blessaða stressaða ferðamenn. Svona troðfull af hótelum verður Kvosin eins og flugstöð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun