Svartfjallaland í úrslitaleikinn á öðru stórmótinu í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2012 17:41 Katarina Bulatovic Mynd/AFP
Norðmenn mæta Svartfjallalandi í úrslitaleiknum á Evrópumóti kvenna í handbolta í Serbíu eftir að Svartfellingar unnu dramatískan eins marks sigur á Serbíu, 27-26, í seinni undanúrslitaleiknum í Belgrad í kvöld. Norðmenn unnu 11 marka sigur á Ungverjum í fyrri undanúrslitaleik dagsins og geta unnið fimmta Evrópumeistaratitilinn í röð á morgun. Þetta er annað stórmótið í röð sem Norðmenn og Svartfjallaland mætast í úrslitaleik á stórmóti en norsku stelpurnar unnu 26-23 sigur í úrslitaleik þjóðanna á Ólympíuleikunum í London í sumar. Svartfjallaland var með íslenska landsliðinu í riðli á EM. Heimakonur í serbneska landsliðinu fengu tækifæri til að tryggja sér framlengingu í lokin en Marina Vukevic varði lokaskotið á glæsilegan hátt og tryggði Svartfjallalandi endanlega sæti í úrslitaleiknum. Milena Knezevic skoraði átta mörk fyrir Svartfjallaland þar á meðal mikilvæg mörk á lokakaflanum. Stórskyttan Katarina Bulatovic var næst markahæst með sex mörk. Serbar skoruðu tvö fyrstu mörkin en þá tóku Svartfellingar yfirhöndina og komust í 8-4 með frábærum tólf mínútna spretti. Serbar svöruðu með mjög góðum kafla og þær serbnesku náðu mest þriggja marka forskoti, 14-11, þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Svartfjallaland náði að minnka muninn í eitt mark fyrir hálfleik, 14-13. Svartfellingar skoruðu fjögur af fimm fyrstu mörkum seinni hálfleiksins og komust í 18-16 og voru 21-19 yfir þegar 16 mínútur voru eftir. Serbar náði að jafna í 21-21 og 22-22 en Svartfellingar náðu þá aftur tveggja marka forskoti, 24-22, þegar átta mínútur voru eftir. Svartfjallaland hélt frumkvæðinu út leikinn en var þó næstum því búið að missa leikinn í framlengingu í lokin.
Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira