Innlent

Jólasagan birtist á aðfangadag

BS skrifar
Auk þess að fá sögu sína birta í Fréttablaðinu á aðfangadag, myndskreytta af Halldóri Baldurssyni teiknara, hlýtur sigurvegari jólasögukeppninnar fartölvu í verðlaun.
Fréttablaðið/GVA
Auk þess að fá sögu sína birta í Fréttablaðinu á aðfangadag, myndskreytta af Halldóri Baldurssyni teiknara, hlýtur sigurvegari jólasögukeppninnar fartölvu í verðlaun. Fréttablaðið/GVA
Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu frumsömdu jólasöguna í ár. Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag, myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara.

Samkeppnin er öllum opin. Einu skilyrðin eru þau að sagan fjalli um jólin eða fangi anda jólanna með einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk eru 1.000 til 1.300 orð (um það bil 5.500 til 7.000 slög með bilum) en að öðru leyti eru efnistök frjáls.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu sögurnar að mati dómnefndar, sem Fréttablaðið skipar. Í fyrstu verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba, auk þess sem sagan birtist í blaðinu. Verðlaun fyrir annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af gerðinni United. Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum.

„Þetta er hugmynd sem okkur langaði til að prófa og ef vel tekst til gæti hún orðið að árlegri hefð,“ segir Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins. Hún hvetur áhugasama höfunda, reynda sem óreynda, til að senda inn sögur og gefa hugmyndafluginu lausan tauminn. „Andi jólanna er víðfeðmt hugtak. Skemmtilegustu sögurnar eru oft þær sem koma manni svolítið á óvart.“

Texta skal senda í Word-skjali (eða á sambærilegu formi) á netfangið jolasaga@frettabladid.is ásamt nafni höfundar, netfangi og símanúmeri. Starfsmaður Fréttablaðsins tekur á móti sögunum og sendir þær nafnlausar áfram til dómnefndar. Skilafrestur er til 5. desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×