Jólasagan birtist á aðfangadag BS skrifar 2. nóvember 2012 08:00 Auk þess að fá sögu sína birta í Fréttablaðinu á aðfangadag, myndskreytta af Halldóri Baldurssyni teiknara, hlýtur sigurvegari jólasögukeppninnar fartölvu í verðlaun. Fréttablaðið/GVA
Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu frumsömdu jólasöguna í ár. Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag, myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara. Samkeppnin er öllum opin. Einu skilyrðin eru þau að sagan fjalli um jólin eða fangi anda jólanna með einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk eru 1.000 til 1.300 orð (um það bil 5.500 til 7.000 slög með bilum) en að öðru leyti eru efnistök frjáls. Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu sögurnar að mati dómnefndar, sem Fréttablaðið skipar. Í fyrstu verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba, auk þess sem sagan birtist í blaðinu. Verðlaun fyrir annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af gerðinni United. Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum. „Þetta er hugmynd sem okkur langaði til að prófa og ef vel tekst til gæti hún orðið að árlegri hefð,“ segir Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins. Hún hvetur áhugasama höfunda, reynda sem óreynda, til að senda inn sögur og gefa hugmyndafluginu lausan tauminn. „Andi jólanna er víðfeðmt hugtak. Skemmtilegustu sögurnar eru oft þær sem koma manni svolítið á óvart.“ Texta skal senda í Word-skjali (eða á sambærilegu formi) á netfangið jolasaga@frettabladid.is ásamt nafni höfundar, netfangi og símanúmeri. Starfsmaður Fréttablaðsins tekur á móti sögunum og sendir þær nafnlausar áfram til dómnefndar. Skilafrestur er til 5. desember.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira