Lífið

Fáðu fría förðun hjá Smashbox

Smashbox býður upp á fría förðun á í Hagkaup í Kringlunni um helgina.
Smashbox býður upp á fría förðun á í Hagkaup í Kringlunni um helgina.
„Við ætlum að fagna komu Smashbox til Íslands með því að bjóða kúnnunum okkar upp á fría förðun hjá förðunarfræðingum Smashbox á föstudaginn og laugardaginn í Hagkaup í Kringlunni,"segir María Guðvarðardóttir markaðsstjóri Smashbox.

Herlegheitin hefjast klukkan 14.00 og allir fá mynd af sér hjá Óskari Hallgrímsyni, ljósmyndara eftir förðunina. Til að halda stuðinu gangandi mun plötusnúður þeyta skífum.

Bóka þarf tíma hjá snyrtivörudeild Hagkaup í Kringlunni í síma 563-5221.

Aðspurð nánar um þetta nýja merki segir María; „Smashbox kemur frá LA og var stofnað af þeim bræðrum Dean og Davis Factor sem eru langafa synir Max Factor. Þeir bræður eru báðir mjög þekktir ljósmyndarar og hugsa merkið út frá ljósmynda heiminum. Hver kona á alltaf að vera reiðubúin fyrir myndavélina. Með tilkomu allra myndasíðnanna, facebook, Instagram og myndavélasímanna eru myndir komnar á netið með það sama. Því viljum við að þú sért tilbúin, alltaf.

Merkið hefur upp á ótrúlega margt að bjóða, við erum með mikið úrval af frábærum augnskuggum, kinnalitum, glossum og varalitum, allar vörurnar hjá Smashbox eru hannaðar til þess að endast lengi og það gera þær.

Smashbox er einna þekktast fyrir primerana sína og við erum með primera fyrir allar húðtegundir. Allir draga þeir úr fínum línum og opinni húð og gera húðina fullkomna fyrir daginn.

Primerinn er uppáhalds vara Davis Factor, því hún styttir honum þær stundir sem hann annars hefði þurft að eyða í eftirvinnslu eftir myndatökur.

Einnig er Smashbox með frábæra color corrector primera, hver hefur sitt hlutverk þeir eru ýmist ætlaðir til þess að draga úr roða, lífga upp á þreytta húð eða taka burt dökka bletti.

Okkur langar að kynna þessar frábæru vörur fyrir kúnnunum okkar, við viljum finna hinn fullkomna grunn fyrir hvern og einn og litapallettu sem hentar hverjum og einum.

Við viljum að allir kúnnarnir okkar séu tilbúnir fyrir þau ljósmyndatækifæri sem hver dagur hefur upp á á bjóða."



Förðunarfræðingur Kim Kardashian notar Smashbox vörurnar á Kim.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.