Jakob hitnar ekki fyrr en í seinni hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2012 16:30 Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Stefán
Jakob Örn Sigurðarson bakvörður íslenska körfuboltalandsliðsins er búinn að skora 14,0 stig að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum liðsins í undankeppni EM. Jakob verður í sviðsljósinu í dag þegar strákarnir taka á móti Eistum klukkan 19.15 í Laugardalshöllinni. Íslenska liðið hefur ekki verið að spila nægilega vel í fyrri hálfleik í fyrstu tveimur leikjunum í Laugardalshöllinni og hefur tilfinnanlega saknað framlags frá Jakobi á fyrstu tuttugu mínútunum leikjanna. Jakob náði nefnilega aðeins að skora 4 stig á 33 mínútum í fyrri hálfleikjum íslenska liðsins á móti Serbum og Ísraelum þar sem bara 1 af 11 skotum hans rötuðu rétta leið. Í seinni hálfleik er hinsvegar allt aðra sögu að segja af Jakobi sem hefur skorað 22 stig í seinni hálfleik í fyrstu tveimur leikjum íslenska liðsins í Höllinni. Jakob hefur nýtt 50 prósent skota sinna eftir hlé og 4 af 7 þriggja stiga skotum hans rötuðu rétta leið. Eins og sést hér fyrir neðan hefur verið mikill munur á framlagi Jakobs í fyrri og seinni hálfleik í öllum fjórum leikjunum og það er óhætt að segja að íslenska landsliðið þurfi á Jakobi að halda í fyrri hálfleik á móti Eistum í kvöld.Jakob Örn Sigurðarson í undankeppni EM 2012:Samtals: 56 stig á 141 mínútu Skotnýting: 19 af 50 (38 prósent) 3ja stiga skotnýting: 10 af 27 (37 prósent)Fyrri hálfleikur: 15 stig á 69 mínútum Skotnýting: 5 af 20 (25 prósent) 3ja stiga skotnýting: 3 af 11 (27 prósent)Seinni hálfleikur: 41 stig á 72 mínútum Skotnýting: 14 af 30 (47 prósent) 3ja stiga skotnýting: 7 af 16 (44 prósent)
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Fimm ástæður þess að Ísland falli strax út á EM Fótbolti Sex leikmenn Íslands í lyfjapróf Fótbolti Nýi þjálfarinn spilar öðruvísi og Orri verður aðalframherjinn Fótbolti EM í dag: Hitabylgja og hrakfarir við komuna til Thun Fótbolti Bandaríkin áfram en Kanada úr leik eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin Íslenski boltinn Æfir í Dublin en fer fyrr til New Orleans „að venjast hitanum og rakanum“ Sport Rúnar Alex brákaði bein á fyrstu æfingunni Fótbolti Karólína Lea sögð skrifa undir hjá Inter á næstu dögum Fótbolti Fór heim með þrjár treyjur og stuttbuxur Messi Fótbolti Fleiri fréttir Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum Sjá meira