Innlent

Spennan í Kraganum

Á morgun kemur í ljós hverjir mun skipa efstu sæti lista Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hart verður barist í báðum flokkum, í Samfylkingunni takast Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir á um fyrsta sætið, og í Sjálfstæðisflokknum eru mörg ný andlit í pólitík að stíga fram á sjónarsviðið.

Mikil spenna verður í pólitíkinni í fjölmennasta kjördæmi landsins, Suðvesturkjördæmi eða Kraganum um helgina en þá fer fram prófkjör í tveimur stærstu flokkunum, Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum.

Rafrænt flokksval Samfylkingarinnar hófst á miðnætti og stendur fram til fimm annað kvöld, tíu eru í framboði og gætu þar fjórir núverandi þingmenn verið að berjast fyrir framtíð sinni á Alþingi en flokkurinn hlýtur einungis tvo þingmenn í kjördæminu samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Gallups. Þá mun athyglin beinast að baráttu Árna Páls Árnasonar þingmanns og Katrínar Júlíusdóttur fjármálaráðherra um fyrsta sæti listans en hún er nátengd formannskjöri í flokknum í febrúar, Árni hefur nú þegar boðið sig fram til formennsku og mun Katrín tilkynna um sín áform eftir flokksvalið og ljóst að útkoma þess mun hafa áhrif á þá ákvörðun. Tæplega 5700 eru á kjörskrá, þar af rúmlega 600 skráðir stuðningsmenn en kosningu lýkur klukkan fimm og er von á úrslitum upp úr klukkan sjö.

Hjá Sjálfstæðisflokknum eru sextán manns í framboði í sjö sæti en einungis þrír núverandi þingmenn og því mörg ný andlit í hópnum. Þar er Bjarni Benediktsson formaður flokksins að bjóða sig fram í fyrsta sæti ásamt Ragnari Önundarsyni. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Gallups myndi Sjálfstæðisflokkurinn ná inn sex kjördæmakjörnum þingmönnum í Suðvesturkjördæmi en þar á flokkurinn nú fjóra þingmenn og verða því mögulega þrír nýir þingmenn valdir í prófkjörinu á morgun. Tæplega fimmtán þúsund eru á kjörskrá en prófkjörið stendur milli klukkan níu og sex og er von á fyrstu tölum upp úr klukkan sjö.

Þá fer einnig fram um helgina flokksval Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi en þar hafa átta boðið sig fram í sex efstu sætin, þar af þrír núverandi þingmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×