Spennan í Kraganum 9. nóvember 2012 19:49
Á morgun kemur í ljós hverjir mun skipa efstu sæti lista Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hart verður barist í báðum flokkum, í Samfylkingunni takast Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir á um fyrsta sætið, og í Sjálfstæðisflokknum eru mörg ný andlit í pólitík að stíga fram á sjónarsviðið. Mikil spenna verður í pólitíkinni í fjölmennasta kjördæmi landsins, Suðvesturkjördæmi eða Kraganum um helgina en þá fer fram prófkjör í tveimur stærstu flokkunum, Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum. Rafrænt flokksval Samfylkingarinnar hófst á miðnætti og stendur fram til fimm annað kvöld, tíu eru í framboði og gætu þar fjórir núverandi þingmenn verið að berjast fyrir framtíð sinni á Alþingi en flokkurinn hlýtur einungis tvo þingmenn í kjördæminu samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Gallups. Þá mun athyglin beinast að baráttu Árna Páls Árnasonar þingmanns og Katrínar Júlíusdóttur fjármálaráðherra um fyrsta sæti listans en hún er nátengd formannskjöri í flokknum í febrúar, Árni hefur nú þegar boðið sig fram til formennsku og mun Katrín tilkynna um sín áform eftir flokksvalið og ljóst að útkoma þess mun hafa áhrif á þá ákvörðun. Tæplega 5700 eru á kjörskrá, þar af rúmlega 600 skráðir stuðningsmenn en kosningu lýkur klukkan fimm og er von á úrslitum upp úr klukkan sjö. Hjá Sjálfstæðisflokknum eru sextán manns í framboði í sjö sæti en einungis þrír núverandi þingmenn og því mörg ný andlit í hópnum. Þar er Bjarni Benediktsson formaður flokksins að bjóða sig fram í fyrsta sæti ásamt Ragnari Önundarsyni. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Gallups myndi Sjálfstæðisflokkurinn ná inn sex kjördæmakjörnum þingmönnum í Suðvesturkjördæmi en þar á flokkurinn nú fjóra þingmenn og verða því mögulega þrír nýir þingmenn valdir í prófkjörinu á morgun. Tæplega fimmtán þúsund eru á kjörskrá en prófkjörið stendur milli klukkan níu og sex og er von á fyrstu tölum upp úr klukkan sjö. Þá fer einnig fram um helgina flokksval Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi en þar hafa átta boðið sig fram í sex efstu sætin, þar af þrír núverandi þingmenn.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira