Lífið

Jennifer giftir sig á búgarði Juliu Roberts

MYNDIR / COVER MEDIA
Heitasta kjaftasagan í Hollywood í dag er að vinalega leikkonan Jennifer Aniston ætli að ganga að eiga unnusta sinn Justin Theroux á búgarði leikkonunnar Juliu Roberts í Nýju-Mexíkó.

Jennifer er að leika í myndinni We're the Millers í Nýju-Mexíkó um þessar mundir og það er ekki af einskærri tilviljun. Jennifer er nefnilega rosalega hrifin af búgarði Juliu. Frænka Juliu, Emma Roberts, leikur með Jennifer í myndinni og hefur boðið Jennifer að koma í skoðunarferð um setrið.

Jennifer og Justin ætla að gifta sig í haust og gætu vel haldið hundrað manna veislu hjá Juliu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.