Piers og Anthony Pollard komu í fyrsta skiptið til Íslands í byrjun júlí. Þeir feðgar hafa veitt mikið saman í gegnum árin. Í samtali við Fréttablaðið segist Piers hafa verið með veiðidellu frá því hann var smágutti. Hann hafi oft farið með pabba sínum að veiða þegar hann var yngri og eftir að hann varð fullorðinn hafi þeir feðgar farið árlega saman í veiðiferðir hingað og þangað. Mest hafi þeir veitt í Englandi og Skotlandi. Hann segir að fyrir fimm árum hafi þeir síðan hætt að fara saman að veiða. Engin sérstök ástæða hafi verið fyrir því - það hafi bara gerst.
"Þvílíkt afl og kraftur"

Sá öflugasti
Piers segist fjórum sinnum áður hafa veitt 100 sentímetra langan lax en enginn þeirra komist í hálfkvisti við þann sem tók Rauða frances-inn í Sigurðarstreng á dögunum.
"Þvílíkt afl og kraftur. Ég hefði aldrei trúað þessu hefði ég ekki haldið sjálfur um stöngina. Ég bara hreinlega verð að upplifa þetta aftur."
Eftir morgunvaktina voru þeir feðgar nokkuð sáttir enda hafði sonurinn þá landað þessum silfurbjarta og lúsuga stórlaxi. Þeir vissu ekki hvað beið þeirra.
Þegar þeir feðgar komu inn í veiðihúsið Árhvamm eftir kvöldvaktina birti yfir öllu og öllum. Það sást á fasi þeirra að eitthvað stórkostlegt hafði gerst.
"Ekkert sérstök saga"

Anthony segist af fenginni reynslu vel hafa gert sér grein fyrir því að sigurinn væri ekki unninn þó laxinn væri búinn að taka.
"Raunar var svolítið langt í það á þessum tímapunkti því eftir að hafa togast á við laxinn í smá tíma tók hann á rás og hélt af stað niður ána. Ég er frekar slæmur í mjöðminni þannig að ég lét Hilmar leiðsögumann hafa stöngina. Hann bókstaflega hljóp á eftir laxinum niður flúðirnar og staðnæmdist í Höfðamelshyl, sem er líklega einum 4-500 metrum fyrir neðan staðinn þar sem laxinn tók upphaflega."
Laxinn fór 800 metra niður ána"Þegar ég kom tók ég strax við stönginni á nýjan leik en viti menn, eftir stuttan tíma fór laxinn aftur af stað. Hann var aldeilis ekki reiðubúinn að gefast upp fyrir mér strax - það var augljóst. Eins og áður rauk hann niður ána og Hilmar leiðsögumaður tók stöngina aftur og hljóp eins og fætur toguðu á eftir fiskinum sem róaðist ekki fyrr en hann var kominn niður í Beinagilsstreng."
Þegar þarna var komið hafði fiskurinn líklega dregið Anthony og hans föruneyti eina 800 metra niður Hofsá.
"Hilmar var skiljanlega lafmóður þegar ég loks kom og tók aftur við stönginni. Laxinn var líklega einnig orðinn svolítið þreyttur því hann ákvað að halda kyrru fyrir í Beinagilsstreng. Þegar þarna var komið notaði ég alla mína reynslu og kunnáttu við að þreyta fiskinn, þó vissulega hafi Hilmar átt stóran þátt í því eftir hafa hlaupið 800 metra með fiskinum niður flúðir."
Smellur - hnúturinn gaf sig

"Enn á ný rauk hann aðeins af stað en þó sem betur fer ekki langt. Ég sá aftur á móti að ég var nánast með alla línuna úti og þegar ég er að rembast við að draga inn þá heyri ég skyndilega smell. Hilmar spyr hvað hafi gerst.
Ég lít í kringum mig og sé bara lausa línu hanga fram af stönginni en aðra línu úti í á. Hnúturinn við undirlínuna hafði gefið sig. Hilmar sá þetta fljótt og kastaði sér beinlínis út á eftir línunni út í á þar sem hann nær tökum á henni. Þarna togaðist hann á við stórlax með berum höndum en gaf mér og syni mínum þó nægan slaka til að geta hnýtt línuna á nýjan leik við undirlínuna. Það tókst sem betur fer og eftir nokkrar mínútur í viðbót lönduðum við loks þessum stórkostlega laxi. Eins og ég sagði þá er þessi saga ekkert sérstök," segir Anthony, kíminn á svip.
Hlógu saman í korterAnthony og Piers segjast hafa hlegið saman í svona korter eftir að þetta allt gerðist. Þeir feðgar tóku heilan helling af myndum þennan dag, en eitthvað var fókusinn að stríða þeim því myndirnar voru allar úr fókus. Eitt er þó víst að þessi dagur verður skýr í huga þeirra um aldur og ævi.
"Þetta var stórkostlegur dagur," segir Piers. "Þegar sá gamli kveður mig og heldur til veiða á himnum þá mun ég alltaf eiga þennan dag í minningunni."
Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að báðum löxunum var sleppt. Sá seinni þurfti hins vegar góðar 20 mínútur til að ranka við sér og synda út í hyl á nýjan leik.
Veiðihúsið Árhvammur við Hofsá endurbætt

Hofsá á aðalupptök sín á heiðarsvæði sunnan Fossdals og fellur áin í Vopnafjörð, skammt innan við kaupstaðinn. Veitt er á sjö stangir í ánni og frá árinu 1974 hefur meðalveiðin verið í kringum 1.100 laxar á ári. Mesta veiðin var árið 1992 þegar 2.238 laxar veiddust en minnsta veiðin var árið 1982 þegar 141 lax veiddist.
Þessi grein birtist í Fréttablaðinu fimmtudaginn 26. júlí eins og sjá má hér.
trausti@frettabladid.is