Slökkviliðsstjóri hefur áhyggjur af þurrkum Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 11. júlí 2012 12:53 Selfoss.
Slökkviliðsstjórinn í Árnessýslu hefur vaxandi áhyggjur af langvarandi þurrkum á Suðurlandi. Hann segir slökkviliðið vera skíthrætt við einnota grill og önnur ný tæki sem geta verið mjög varasöm úti í náttúrunni. Mjög þurrt hefur verið á landinu í sumar og víða á Suðurlandi má sjá gulnuð tún og skraufþurra akra. Bændur hafa miklar áhyggjur af þessu vegna uppskerunnar en slökkviliðið í árnessýslu hefur einnig vaxandi áhyggjur vegna hættu á sinueldum á svæðinu. „Við sjáum og heyrum um þessa elda í borgarfirði og upp undir snæfellsnesi og svo fengum við í gær lítið skot, upp við Árnes, sem slökkviliðið réði nú ágætlega við en jú þessi þurrkar hafa óneitanlega sett okkur í svona stellingar," segir Kristján Einarsson. Hann segir slökkviliðið hafa reynt að byggja sig upp af búnaði með tilliti til sinu og gróðurelda, þá séu bændur duglegir að koma með haugsugur til að dæla vatni á elda og svo sé vatnstunna landhelgisgæslunnar mikil hjálp. „Við erum með um sjö þúsund bústaði hér í árnessýslu og fólk er að girða og það verður mikil sina og þetta er alltaf yfirvofandi að þetta gæti komist í þetta eldur og þá er skrattinn laus verður að segjast eins og er," segir hann. Hann segir að lítið þurfi til að kveikja sinueld. „Við erum skíthrædd við þessi einnota grill, að fólk sé að not aþetta einhverstaðar og skilja eftir einhverja glóð í góðvirðri og um kvöldið eða seinna kemur rok og þá fer glóð út um allt, við höfum upplifað það á þingvöllum fyrir nokkrum árum síðan fóru þrír hektarar bara útaf einnota grilli sem var farið frá," segir hann. Þá beri að varast allskonar nýjungar sem verið að er að bjóða uppá. Við höfum séð ýmislegt, einu sinni var einhversskonar kerti fest ofan í trédrumb og nú eru þetta einhver grill sem hanga í stöngum, þetta er alveg óskaplega fallegt á auglýsingasíðunum en þegar að fólk fer að nota þetta þá getur ýmislegt gerst ef það er ekki nægjanlega varið og tryggt , þannig það er ýmislegt sem við sjáum sem orkar tvímælis," segir Kristján Einarsson.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Sjá meira