Brynjar rassskellir fjölmiðla BBI skrifar 11. júlí 2012 14:47 Brynjar Níelsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins.
Brynjar Níelsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins, hellir sér yfir fjölmiðla í bloggi á Pressunni í dag. Tilefnið er upphrópanir í fjölmiðlum í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um að íslenska ríkið hefði brotið mannréttindi á tveimur blaðakonum. „Öll þessi umræða sýnir eingöngu vanþekkingu á stjórnskipulegri stöðu dómstóla og eftir hvaða reglum þeir verða að starfa," segir Brynjar um fréttaflutning gærdagsins. Blaðakonurnar voru dæmdar til skaðabóta fyrir að birta ummæli beint eftir viðmælanda sínum. Brynjar segir eðlilegt að þær hafi hlotið dóm enda hafi þágildandi lög verið skýr um að blaðamenn bæru ábyrgð þó ærumeiðandi ummæli hafi verið höfð eftir öðrum. „Sé því við einhverja að sakast er það löggjafinn sem hélt áðurnefndu ákvæði prentlaga óbreyttu þrátt fyrir lögfestingu mannréttindasáttmálans," segir Brynjar. „Einkennandi er fyrir fjölmiðla í seinni tíð að reyna að grafa undan trausti og trúverðugleika dómstóla með ómálefnalegri gagnrýni og upphrópunum sem byggjast á misskilningi og vanþekkingu," segir Brynjar. Rétt er að taka fram að niðurstaða Mannréttindadómstólsins í máli Erlu var ekki síst á því byggð að héraðsdómstóll rökstuddi ekki með nægilega skýrum hætti að umrædd ummæli hafi í raun verið ærumeiðandi. Bæði er tekið fram að ekki sé sérstaklega rökstutt að í ummælunum hafi falist að viðkomandi hafi verið í stjórn alþjóðlegra glæpasamtaka. Sömuleiðis kemur fram að íslenski dómstóllinn hafi ekki tekið tillit til þess hvort í ummælunum fælist gildisdómur eða ekki, en það getur skipt sköpum í meiðyrðamálaumfjöllun.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Sjá meira