Innlent

Brynjar rassskellir fjölmiðla

BBI skrifar
Brynjar Níelsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins.
Brynjar Níelsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins.
Brynjar Níelsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins, hellir sér yfir fjölmiðla í bloggi á Pressunni í dag. Tilefnið er upphrópanir í fjölmiðlum í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um að íslenska ríkið hefði brotið mannréttindi á tveimur blaðakonum.

„Öll þessi umræða sýnir eingöngu vanþekkingu á stjórnskipulegri stöðu dómstóla og eftir hvaða reglum þeir verða að starfa," segir Brynjar um fréttaflutning gærdagsins.

Blaðakonurnar voru dæmdar til skaðabóta fyrir að birta ummæli beint eftir viðmælanda sínum. Brynjar segir eðlilegt að þær hafi hlotið dóm enda hafi þágildandi lög verið skýr um að blaðamenn bæru ábyrgð þó ærumeiðandi ummæli hafi verið höfð eftir öðrum. „Sé því við einhverja að sakast er það löggjafinn sem hélt áðurnefndu ákvæði prentlaga óbreyttu þrátt fyrir lögfestingu mannréttindasáttmálans," segir Brynjar.

„Einkennandi er fyrir fjölmiðla í seinni tíð að reyna að grafa undan trausti og trúverðugleika dómstóla með ómálefnalegri gagnrýni og upphrópunum sem byggjast á misskilningi og vanþekkingu," segir Brynjar.

Rétt er að taka fram að niðurstaða Mannréttindadómstólsins í máli Erlu var ekki síst á því byggð að héraðsdómstóll rökstuddi ekki með nægilega skýrum hætti að umrædd ummæli hafi í raun verið ærumeiðandi. Bæði er tekið fram að ekki sé sérstaklega rökstutt að í ummælunum hafi falist að viðkomandi hafi verið í stjórn alþjóðlegra glæpasamtaka. Sömuleiðis kemur fram að íslenski dómstóllinn hafi ekki tekið tillit til þess hvort í ummælunum fælist gildisdómur eða ekki, en það getur skipt sköpum í meiðyrðamálaumfjöllun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×