Seðlabanki Evrópu er sjálfstæð stofnun 18. júlí 2012 06:00 Seðlabanki Evrópu er ekki „einkabanki" samkvæmt almennri skilgreiningu á hugtakinu, það er bankinn er ekki viðskiptabanki í eigu einkaaðila. Seðlabanki Evrópu er ein af stofnunum Evrópusambandsins og eru seðlabankar aðildarríkja Evrópusambandsins eigendur alls hlutafjár bankans. Bankinn er þungamiðja seðlabankakerfis Evrópu (e. European System of Central Banks, ESCB) sem er vettvangur samstarfs seðlabanka aðildarríkja ESB til að viðhalda fjármálastöðugleika í Evrópusambandinu. Seðlabanki Evrópu er sjálfstæð stofnun sem hýsir samvinnu evruríkjanna við stjórn peningamála, en þau aðildarríki Evrópusambandsins sem hafa tekið upp evru hafa sameiginlega peningamálastefnu. Stefna evruríkjanna um stjórn peningamála er ákvörðuð á vettvangi bankans með aðkomu seðlabankastjóra evruríkjanna. Seðlabankar evruríkjanna hafa síðan umsjón með framkvæmd stefnunnar í heimalöndum sínum. Hitt er annað mál hvort seðlabankar aðildarríkja Evrópusambandsins, sem eru eigendur Seðlabanka Evrópu, séu í einka- eða ríkiseigu. Seðlabankar komu á sjónarsviðið á 17. öld. Sá fyrsti var stofnaður í Svíþjóð árið 1656 og seðlabanki Englands var stofnaður í kjölfarið, árið 1694. Upprunalegu seðlabankarnir voru stofnaðir af einkaaðilum og voru lengi í einkaeigu. Á miðri tuttugustu öld voru seðlabankar víðs vegar í heiminum þjóðnýttir og á síðari hluta tuttugustu aldar var áhersla lögð á að gera þá sjálfstæða gagnvart stjórnvöldum innanlands. Í dag eru seðlabankar yfirleitt sjálfstæðar stofnanir í eigu ríkja. Eftir því sem Evrópuvefurinn kemst næst eru þó til seðlabankar á evrusvæðinu sem eru að einhverju leyti í einkaeigu. Seðlabanki Belgíu er til að mynda að hluta til í einkaeigu og er bankinn skráður á hlutabréfamarkað í belgísku kauphöllinni. Bankinn var stofnaður sem hlutafélag árið 1850 og voru eigendur hlutafjárins belgískir viðskiptabankar, sem fram að því höfðu sjálfir haft myntsláttu og prentun seðla á höndum, en síðar var ákveðið að setja hlutabréf bankans á markað. Árið 1948 var heildarhlutafé seðlabankans aukið og belgíska ríkið varð eigandi helmings heildarhlutafjár bankans. Hinn helmingurinn var áfram í höndum einkaaðila. Enn þann dag í dag geta almennir fjárfestar og fjármálafyrirtæki átt hlut í seðlabanka Belgíu. Svipaða sögu er að segja af seðlabanka Grikklands sem er einnig skráður á hlutabréfamarkað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Seðlabanki Evrópu er ekki „einkabanki" samkvæmt almennri skilgreiningu á hugtakinu, það er bankinn er ekki viðskiptabanki í eigu einkaaðila. Seðlabanki Evrópu er ein af stofnunum Evrópusambandsins og eru seðlabankar aðildarríkja Evrópusambandsins eigendur alls hlutafjár bankans. Bankinn er þungamiðja seðlabankakerfis Evrópu (e. European System of Central Banks, ESCB) sem er vettvangur samstarfs seðlabanka aðildarríkja ESB til að viðhalda fjármálastöðugleika í Evrópusambandinu. Seðlabanki Evrópu er sjálfstæð stofnun sem hýsir samvinnu evruríkjanna við stjórn peningamála, en þau aðildarríki Evrópusambandsins sem hafa tekið upp evru hafa sameiginlega peningamálastefnu. Stefna evruríkjanna um stjórn peningamála er ákvörðuð á vettvangi bankans með aðkomu seðlabankastjóra evruríkjanna. Seðlabankar evruríkjanna hafa síðan umsjón með framkvæmd stefnunnar í heimalöndum sínum. Hitt er annað mál hvort seðlabankar aðildarríkja Evrópusambandsins, sem eru eigendur Seðlabanka Evrópu, séu í einka- eða ríkiseigu. Seðlabankar komu á sjónarsviðið á 17. öld. Sá fyrsti var stofnaður í Svíþjóð árið 1656 og seðlabanki Englands var stofnaður í kjölfarið, árið 1694. Upprunalegu seðlabankarnir voru stofnaðir af einkaaðilum og voru lengi í einkaeigu. Á miðri tuttugustu öld voru seðlabankar víðs vegar í heiminum þjóðnýttir og á síðari hluta tuttugustu aldar var áhersla lögð á að gera þá sjálfstæða gagnvart stjórnvöldum innanlands. Í dag eru seðlabankar yfirleitt sjálfstæðar stofnanir í eigu ríkja. Eftir því sem Evrópuvefurinn kemst næst eru þó til seðlabankar á evrusvæðinu sem eru að einhverju leyti í einkaeigu. Seðlabanki Belgíu er til að mynda að hluta til í einkaeigu og er bankinn skráður á hlutabréfamarkað í belgísku kauphöllinni. Bankinn var stofnaður sem hlutafélag árið 1850 og voru eigendur hlutafjárins belgískir viðskiptabankar, sem fram að því höfðu sjálfir haft myntsláttu og prentun seðla á höndum, en síðar var ákveðið að setja hlutabréf bankans á markað. Árið 1948 var heildarhlutafé seðlabankans aukið og belgíska ríkið varð eigandi helmings heildarhlutafjár bankans. Hinn helmingurinn var áfram í höndum einkaaðila. Enn þann dag í dag geta almennir fjárfestar og fjármálafyrirtæki átt hlut í seðlabanka Belgíu. Svipaða sögu er að segja af seðlabanka Grikklands sem er einnig skráður á hlutabréfamarkað.
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun