Fatlaðir kjósendur fá að velja sér aðstoðarmann Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. október 2012 09:51 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.
Fatlaðir kjósendur hafa nú með tilteknum skilyrðum sjálfir rétt til að ákveða hver aðstoðar þá við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og á kjörfundi. Lög þar um voru samþykkt á Alþingi í gær. „Ég tel þessa lagabreytingu mikið framfaraspor til aukinna mannréttinda," segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og segir málið hafa verið unnið í náinni samvinnu við Blindrafélagið - samtök blindra og sjónskertra á Íslandi og Öryrkjabandalag Íslands. ,,Mér þótti vænt um að heyra þau ummæli Guðmundar Magnússonar, formanns Öryrkjabandalagsins, að með þessum lögum stæðum við Íslendingar öðrum Norðurlandaþjóðum framar að þessu leyti. Það er góð einkunn," segir Ögmundur á vefsíðu innanríkisráðuneytisins. Breytingin nær einungis til kjósenda sem ekki eru færir um að árita kjörseðla á fyrirskipaðan hátt sakir sjónleysis eða þess að þeim er hönd ónothæf. Þá nær lagabreytingin einnig til sömu kjósenda sem geta ekki sjálfir með skýrum hætti tjáð kjörstjóra eða kjörstjórn þennan vilja sinn og skulu þá kjörstjóri eða kjörstjórn heimila fulltrúa kjósandans að aðstoða hann við atkvæðagreiðsluna leggi kjósandinn fram vottorð réttindagæslumanns, sem starfar samkvæmt lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, þar sem staðfest er að kjósandi hafi valið sjálfur tiltekinn nafngreindan fulltrúa sér til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira