Innlent

„Skelfileg niðurstaða“ í dómsmáli

BBI skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Mynd/Stefán Karlsson
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir nýuppkveðinn dóm yfir manni sem réðist á lögreglumenn við störf vera vonbrigði. Maðurinn fékk átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á tvo lögreglumenn í fangageymslu lögreglustöðvar.

Maðurinn var með óspektir á veitingastað nokkrum og var í kjölfarið handtekinn. Þegar í fangageymsluna var komið snerist hann gegn lögreglumönnum, greiddi einum þeirra bylmingshögg í andlitið og skallaði hann þvínæst í höfuðið. Að lokum rak hann hnéð tvisvar af afli í andlit lögreglumannsins sem nefbrotnaði við árásina.

En árásarmaðurinn lét ekki þar við sitja og sneri sér að næsta lögreglumanni, þreif um hálsmál hans og þrengdi að áður en hann kýldi hann í andlitið.

Fyrir þetta fékk hann 8 mánaða fangelsi skilorðsbundið í Héraðsdómi Reykjaness í dag, sem þýðir að hann þarf ekkert að sitja inni. Það finnst Snorra mikil vonbrigði.

„Þetta er sá raunveruleiki sem lögreglumenn þurfa að búa við í störfum sínum," segir Snorri og telur niðurstöður mála í svona málum alltof oft með þessum „skelfilega hætti".

„Þegar verið er að ráðast á lögreglumenn er ekki verið að ráðast á persónuna sem slíka heldur er verið að ráðast á þá þjóðfélagsmynd sem við höfum byggt okkur hér upp," segir hann enda eru lögreglumenn þeir sem framfylgja reglum í þjóðfélaginu og hafa valdbeitingarheimildir.

Snorri kom í viðtal í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis en þar þótti mönnum fróðlegt að bera dóminn sem hér ræðir saman við dóm sem féll nýlega þar sem maður hafði hrækt á skikkju dómara og hlotið fyrir það sex mánaða fangelsi óskilorðsbundið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×