Innlent

Brennuvargur ætlar ekki að áfrýja

Frá Selfossi
Frá Selfossi mynd/ernir
Karlmaður sem grunaður erum að hafa borið eld að ýmsum stöðum á Selfossi að undanförnu ætlar ekki að áfrýja fjögurra vikna gæsluvarðhaldi sem hann var úrskurðaður í á fimmtudag.

Hann er meðal annars grunaður um að hafa borið eld að veitingastaðnum Kaffi Krús, tvisvar sinnum að lögreglustöðinni í bænum og nú síðast KFC-kjúklingastaðnum.

Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í byrjun október en Hæstiréttur ómerkti þann úrskurð og var honum því sleppt úr haldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×