Vilja leggja veg um Kjöl BBI skrifar 25. október 2012 14:39
Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, með Kristján Þór Júlíusson í broddi fylkingar, vilja leggja heilsársveg um Kjöl og lögðu í dag fram þingsályktunartillögu um að ríkisstjórninni verði falið að kanna hagkvæmni þess. Þess er óskað að ríkisstjórnin skili Alþingi skýrslu um málið fyrir 1. apríl. Nýr vegur um Kjöl gæti stytt leiðina mili Norður- og Suðurlands töluvert. „Flest bendir til að veglagningin um Kjöl yrði ein arðsamasta samgönguframkvæmd sem mögulegt er að ráðast í á Íslandi," segir í greinargerð með tillögunni. Framkvæmdin myndi stytta akstursleiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar um ein 13%. Það myndi hafa jákvæð áhrif á vöruflutninga, en ætla má að um 500 tonn af vörum fari þar á milli á hverjum virkum degi. Leiðin milli Selfoss og Akureyrar myndi og styttast um 141 kílómetra, úr 430 km í 289 km. Sama tillaga var lögð fram árið 2008 en þá var talað um að vegurinn gæti haft góð áhrif á ferðaþjónustu á landinu. Vegurinn myndi tengja saman helstu ferðamannasvæði landsins og milli Gullfoss og Mývatns gæti myndast „nýr ferðamannaöxull". Auk Kristjáns eru það þingmennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir, Ragnheiður E. Árnadóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Pétur H. Blöndal, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir sem mæla fyrir tillögunni.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira