Ósáttur við fullyrðingar Ástu BBI skrifar 20. október 2012 14:48 Ásta Ragnheiður, forseti Alþingis.
Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis, er óánægður með fullyrðingar og málflutning Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis í fréttum að undanförnu. Ríkisútvarpið greindi frá því í gær að forseti Alþingis og ríkisendurskoðandi hefðu ákveðið að óska eftir því að erlend endurkoðunarnefnd flýtti úttekt sinni á Ríkisendurskoðun. Björn Valur taldi að með þessari ákvörðun hefði Ásta hunsað Alþingi. Í fréttum RÚV sagði hann að ákvörðunin hefði verið einleikur Ástu og sagðist ekki vita til þess að Ásta hefði haft samband við neinn annan þingmann vegna hennar. Þessu vísaði Ásta alfarið á bug. Hún sagðist hafa haft samráð við marga þingmenn og að Björn Valur hefði sjálfur verið einn þeirra. Hverjir voru þingmennirnir? Björn Valur neitar því í fréttatilkynningu að Ásta hafi haft samráð við hann. "Forseti hafði fyrst samband við mig símleiðis 5 mínútum áður en tilkynningin var send út og las hana þá upp fyrir mig í símanum," segir hann. "Mér er ekki kunnugt um hvort eða þá hvaða þingmenn forseti Alþingis ráðfærði sig við áður en hún tók ákvörðun sína," heldur Björn áfram og telur eðlilegt að hún upplýsi um hverjir það hafi verið og hvernig því samráði var háttað. Björn hefur farið fram á að Ásta dragi til baka rangar fullyrðingar um að hún hafi haft samráð við sig í aðdraganda ákvörðunarinnar.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Forystan sé búin að missa klefann Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Sjá meira