Innlent

Síðustu kjörstöðum lokað

JHH skrifar
Frá kjörstað í dag.
Frá kjörstað í dag.
Síðustu kjörstöðum var lokað núna klukkan tíu, en kosið var í dag um tillögur Stjórnlagaráðs. Eins og fram hefur komið hefur kjörsókn verið nokkuð dræm í dag. Hún fór hægt af stað en jókst svo þegar leið á daginn. Alls voru sex spurningar lagðar fyrir kjósendur og því ljóst að talning getur tekið nokkuð langan tíma. Engu að síður er búist við því að fyrstu tölur birtist um klukkan ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×