Steven Lennon: Hef ekki áhyggjur af markaþurrðinni Hjörtur Hjartarson skrifar 14. júní 2012 13:15 Steven Lennon fagnar hér með liðsfélaga sínum Stefán.
Skoski framherjinn, Steven Lennon, leikmaður Fram, vonast til að lið hans geti komið sér á rétta braut í Pepsi-deildinni með sigri á Fylki í kvöld. Liðin mætast í Árbænum klukkan 19:15 í fyrsta leik sjöundu umferðar. Lennon ræddi við Hjört Hjartarson í Boltaþættinum á X-inu í morgun. „Við höfum farið illa af stað í deildinni í sumar, flestir reiknuðu með okkur í toppbaráttunni en það hefur ekki gengið eftir. Við getum ennþá komið okkur þangað, við þurfum bara að vinna 3-4 leiki í röð og þá verðum við komnir í hóp efstu liða. Flestir reiknuðu með Frömurum sterkum í sumar en liðið hefur einungis náð að landa einum sigri í fyrstu sex leikjunum á tímabilinu. „Væntingar stuðningsmanna fyrir tímabilið slógu ekki útaf laginu. Það var eðlilegt að reikna með okkur öflugum miðað hvernig okkur gekk í vorleikjunum. Að mínu mati hefðum við átt að vinna Val í fyrstu umferðinni, við fengum færi til að klára leikinn, þar á meðal ég. Sigur þar hefði breytt miklu hvað framhaldið varðaði. Þrátt fyrir að hafa fundið netmöskvana aðeins einu sinni í Pepsideildinni í sumar í sex leikjum, veldur markaleysið Steven Lennon ekki áhyggjum. „Auðvitað er þetta ekki sú byrjun sem ég óskaði mér en stundum gerist þetta. Sóknarmenn eru ýmist sjóðandi heitir eða ískaldir. Vonandi næ ég að skora 1-2 mörk í kvöld og koma mér þannig í gírinn. Stefnan er að ná Kjartani Henry", sagði Lennon. Hlustaðu á viðtalið í heild sinni með því að smella á hnappinn hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira