Helgi og félagar unnu toppliðið á útivelli - úrslitakeppnin framundan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2012 19:00 Helgi Már Magnússon. Mynd/Daníel
Helgi Már Magnússon og félagar í 08 Stockholm HR sýndu styrk sinn í kvöld þegar þeir unnu topplið Norrkoping Dolphins á útivelli í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld. Hin þrjú Íslendingaliðin þurftu öll að sætta sig við tap. Þrjú af fjórum Íslendingaliðum í deildinni komust í úrslitakeppnina í ár. Helgi Már Magnússon var með 5 stig, 4 fráköst og 2 stoðsendingar þegar 08 Stockholm HR vann sjö stiga útisigur á toppliði Norrkoping Dolphins, 83-76. 08 Stockholm komst í 26-16 eftir fyrsta leikhlutann og var með 18 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 66-48. Helgi Már og félagar enduðu því deildarkeppnina á því að vinna tvö efstu liðin, Norrkoping í kvöld og svo Södertälje Kings í leiknum á undan. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 24 stig og Hlynur Bæringsson var með 4 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar þegar Sundsvall Dragons tapaði illa á útivelli á móti LF Basket, 83-105. Sundsvall Dragons tapaði því þremur síðustu deildarleikjum sínum. Brynjar Þór Björnsson skoraði 8 stig þegar Jamtland Basket tapaði með sex stigum á móti Sodertelje Kings á útivelli, 94-100. Jamtland Basket átti ekki möguleika á því að komast í úrslitakeppnina. Logi Gunnarsson skoraði 8 stig og gaf 3 stoðsendingar þegar Solna Vikings tapaði með 18 stigum á útivelli á móti Örebro Basket, 102-120. Örebro var komið 15 stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 32-17.
Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Sjá meira