Helgi Már og Martin kláruðu ÍR-inga í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. nóvember 2012 20:57 Martin Hermannsson. Mynd/Stefán
Helgi Már Magnússon, spilandi þjálfari KR, og hinn ungi Martin Hermannsson voru hetjur sinna manna í fimm stiga sigri á ÍR, 79-74, í Hertz-hellinum í Seljaskóli í 7. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í kvöld. Helgi Már og Martin Hermannsson skoruðu ellefu síðustu stig leiksins en KR-ingar unnu síðustu þrjár mínútur leiksins 11-0 og breyttu stöðunni úr 74-68 fyrir ÍR í 74-79 KR-sigur. Helgi Már skoraði sex stig í röð á lokakaflanum, fyrst með því að setja niður tveggja stiga körfu og fá víti að auki og svo með því að hitta úr þriggja stiga skoti og koma KR í 77-74. Martin hóf endurkomuna á þristi og endaði hana síðan með því að setja niður tvö víti. ÍR-ingar klikkuðu á sex síðustu skotum sínum í leiknum og skoruðu síðustu körfu sína þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Martin Hermannsson var með 29 stig og 4 stoðsendingar í kvöld og Helgi Már Magnússon skoraði 16 stig og tók 7 fráköst. Finnur Atli Magnússon skoraði 13 stig. Eric Palm skoraði 20 stig fyrir ÍR og Nemanja Sovic var með 15 stig. KR var 21-19 yfir eftir fyrsta leikhlutann en ÍR vann annan leikhlutann 23-16 og var fimm stigum yfir í hálfleik, 42-37. ÍR var síðan 59-53 yfir fyrir lokaleikhlutann.ÍR-KR 74-79 (19-21, 23-16, 17-16, 15-26)ÍR: Eric James Palm 20/5 fráköst/5 stoðsendingar, Nemanja Sovic 15/8 fráköst, Isaac Deshon Miles 11, Hreggviður Magnússon 9/8 fráköst, Sveinbjörn Claessen 8, Vilhjálmur Theodór Jónsson 4, Ellert Arnarson 3, Hjalti Friðriksson 2, Þorvaldur Hauksson 2..KR: Martin Hermannsson 29/4 fráköst, Helgi Már Magnússon 16/7 fráköst, Finnur Atli Magnusson 13/5 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 9/8 stoðsendingar, Keagan Bell 5, Danero Thomas 4/4 fráköst, Emil Þór Jóhannsson 3.
Dominos-deild karla Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira