Fresta atkvæðagreiðslu um verkbann 16. nóvember 2012 14:43
Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna ákvað á fundi sínum í dag að fresta atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um verkbann í kjaradeilu útvegsmenna og sjómanna. Í tilkynningu frá sambandinu segir að viðræður hjá ríkissáttasemjara um nýjan kjarasamning hafi verið árangurslausar og í byrjun mánaðarins hafi stjórn Samtaka atvinnulífsins samþykkt að atkvæðagreiðsla um boðun verkbanns fari fram. Það hafi verið gert í samræmi við samþykkt aðalfundar LÍÚ, að ef samningar um endurskoðun kjarasamnings útvegsmanna og sjómanna næðust ekki, skyldi efnt til slíkrar atkvæðagreiðslu. „Það er mjög afdrífaríkt skref að fara í verkbann. Á sama tíma og mikill efnahagssamdráttur er í mörgum viðskiptalöndum okkar fyrir sjávarafurðir er framboð frá helstu samkeppnisþjóðum okkar að aukast verulega. Staðan á mörkuðum er því óvenju viðkvæm um þessar mundir," segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ í tilkynningu. Adolf ítrekar að um frestun sé að ræða. „Því miður kann verkbann að vera óumflýjanlegt síðar. Ekki verður komist hjá því að endurskoða tekjuskiptinguna á milli útvegsmanna og sjómanna og margföldun veiðigjaldsins er kornið sem fyllti mælinn," segir Adolf. Útgerðarmenn og sjómenn deila kjörum í hlutaskiptakerfi þar sem laun og launatengd gjöld vegna sjómanna eru tæp 40% að meðaltali. „Þegar samið er um hlutfallsskiptingu af 100 krónum og ríkið tekur 15 er ljóst að þeir sem eftir sitja þurfa að skipta 85 krónum en ekki 100. Hvaða fyrirtæki eða heimili sem er þyrfti að grípa til ráðstafana ef tekjur þeirra lækka skyndilega um 15% og það sama á við um útgerðarfyrirtæki," segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira