Innlent

Fresta atkvæðagreiðslu um verkbann

Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna ákvað á fundi sínum í dag að fresta atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um verkbann í kjaradeilu útvegsmenna og sjómanna. Í tilkynningu frá sambandinu segir að viðræður hjá ríkissáttasemjara um nýjan kjarasamning hafi verið árangurslausar og í byrjun mánaðarins hafi stjórn Samtaka atvinnulífsins samþykkt að atkvæðagreiðsla um boðun verkbanns fari fram. Það hafi verið gert í samræmi við samþykkt aðalfundar LÍÚ, að ef samningar um endurskoðun kjarasamnings útvegsmanna og sjómanna næðust ekki, skyldi efnt til slíkrar atkvæðagreiðslu.

„Það er mjög afdrífaríkt skref að fara í verkbann. Á sama tíma og mikill efnahagssamdráttur er í mörgum viðskiptalöndum okkar fyrir sjávarafurðir er framboð frá helstu samkeppnisþjóðum okkar að aukast verulega. Staðan á mörkuðum er því óvenju viðkvæm um þessar mundir," segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ í tilkynningu.

Adolf ítrekar að um frestun sé að ræða.

„Því miður kann verkbann að vera óumflýjanlegt síðar. Ekki verður komist hjá því að endurskoða tekjuskiptinguna á milli útvegsmanna og sjómanna og margföldun veiðigjaldsins er kornið sem fyllti mælinn," segir Adolf.

Útgerðarmenn og sjómenn deila kjörum í hlutaskiptakerfi þar sem laun og launatengd gjöld vegna sjómanna eru tæp 40% að meðaltali.

„Þegar samið er um hlutfallsskiptingu af 100 krónum og ríkið tekur 15 er ljóst að þeir sem eftir sitja þurfa að skipta 85 krónum en ekki 100. Hvaða fyrirtæki eða heimili sem er þyrfti að grípa til ráðstafana ef tekjur þeirra lækka skyndilega um 15% og það sama á við um útgerðarfyrirtæki," segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×