Sálarmorðingi og illmenni við Landakotsskóla Erla Hlynsdóttir skrifar 2. nóvember 2012 20:56
Fyrrverandi kennari við Landakotsskóla er sagður sálarmorðingi og illmenni í skýrslu rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar sem kynnt var í dag. Átta segjast hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu kirkjunnar þjóna. Rannsóknarnefndin var skipuð á síðasta ári til að rannsaka starfshætti og viðbrögð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna ásakana um kynferðisbrot eða önnur ofbeldisbrot. Þetta var í framhaldi af umfjöllun Fréttatímans um þessi mál. Athygli vekur að nefndin kýs að halda nafnleynd meintra gerenda, nema séra Georgs, fyrrverandi skólastjóra Landakotsskóla, og Margrétar Muller, fyrrverandi kennara. „Vegna þess hversu þátttaka þeirra er yfirgnæfandi í þessari skýrslu," segir Hjördís Hákonardóttir, formaður rannsóknarnefndarinnar.Flestar þær ásakanir sem koma fram, eru þær í garð þeirra? „Já, að nánast öllu leyti," segir Hjördís. Af þeim þrjátíu sem greindu nefndinni frá ofbeldi, sögðust átta hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi, fáeinar frásagnir voru af líkamlegu ofbeldi en 27 greindu frá því að hafa orðið andlegu ofbeldi. Meðal þeirra sem komu fyrir nefndina var karlmaður sem sagði frá ítrekuðu kynferðislegu ofbeldi af hálfu Margrétar og séra Georgs á árunum 1978 til 1983 og sagðist hafa gert nokkrar tilraunir til að segja frá áður. Í flestum tilfellum er það séra Georg sem sagður er hafa beitt kynferðislegu ofbeldi. Margrét kom við sögu í öllum frásögnum af andlegu ofbeldi. Hún var sögð hreinræktaður sadisti, ógeðfelld, geðveik, sálarmorðingi og illmenni. Hjördís segir að nefndarmenn telji að það hafi verið almenn vitneskja um þessa háttsemi hennar og séra Georg hafi farið fremstur í að þagga slíkt niður. „Hins vegar að fleiri hafi haft vitneskju um þessa háttsemi hennar og það falli undir skilgreiningu á þessu hugtaki já, þöggun," segir Hjördís.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira