Fær leyfi frá störfum vegna fjármálaumfjöllunar BBI skrifar 30. október 2012 22:54 Mynd úr safni.
Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur óskað eftir leyfi frá störfum vegna blaðagreinar sem birtist í miðvikudagsblaði DV. Umfjöllunarefni hennar eru viðskipti sem hann tók þátt í tveimur árum áður en hann hóf störf hjá félaginu. Guðmundur Örn Jóhannsson er framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar en í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg segir að hann hafi tekið þessa ákvörðun með hagsmuni Landsbjargar að leiðarljósi því aldrei megi leika vafi á trúverðugleika samtakanna. Þá segir að það sé ósk Guðmundar og stjórnar SL að þetta mál hafi hvorki áhrif á starfsemi félagsins né mikilvæga fjáröflun björgunarsveita um land allt.Ásakanir um hundruð milljóna króna peningaþvætti Málið tengist gríðarlega alvarlegum ásökunum sem bornar eru á framkvæmdastjórann og eru birtar á myndbandavefnum YouTube. Þar er framkvæmdastjórinn sagður skipuleggja hundruð milljóna króna peningaþvætti og gjaldeyrisbrask í höfuðstöðvum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Um helgina mun Slysavarnarfélagið Landsbjörg selja Neyðarkallinn um land allt. Það er önnur mesta fjáröflun félagsins, en sú mesta er vitaskuld flugeldasalan fyrir áramót. Vísir birti hlekk á myndskeiðið í þessari frétt. Guðmundur Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri félagsins, krafðist þess, í tölvuskeyti, að það yrði tekið út, enda væri um að ræða tilbúning af ónefndum aðila sem gert væri í þeim tilgangi að skaða æru og trúverðugleika undirritaðs og Landsbjargar. Vísir hefur orðið við þeim tilmælum í bili. Vísir hefur reynt að ná tali af Guðmundi í síma í morgun, en án árangurs.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Sjá meira