Ef flugið leggst af gætu sveitarfélög farið í eyði BBI skrifar 31. október 2012 21:52
Ákvörðun flugfélagsins Ernis um að hætta áætlunarflugi til minni áfangastaða á Íslandi gæti reynst örlagarík. Ef flugfélagið hættir til að mynda að fljúga til Gjögurs er hætt við að ekki verði lífvænlegt á veturna í gervöllum Árneshreppi á Ströndum. Framkvæmdastjóri flugfélagsins Ernis fullyrðir við Vísi að allt stefni í að flugi til nokkurra minni áfangastaða verði hætt vegna fjármála. Árneshreppur á Ströndum er einn þeirra áfangastaða sem Ernir hefur flogið til. Á veturna lokast allar leiðir til og frá hreppnum nema flugleiðin. Vegir verða ófærir og íbúar hafa stólað á áætlanaflug Ernis, bæði hvað samgöngur varðar og vörusendingar. „Þetta getur haft örlagaríkar afleiðingar fyrir sveitarfélagið. Ef þeir hætta að fljúga eru bara engar samgöngur hingað yfir veturinn. Því vegurinn er þannig að honum er ekkert haldið opnum nema kannski einhvern tíma og einhvern tíma," segir Guðbjörg Þorsteinsdóttir, íbúi í Árneshreppi. „Við getum ekki stólað á það að komast landleiðina." Vegagerðin hefur gefið út að reynt verði að opna veginn frá Árneshreppi að Hólmavík tvisvar í viku fram að jólum en eftir það er ekki á vísan að róa með það hvort reynt verður að halda veginum greiðfærum. Auk þess getur veðráttan verið slík að vegurinn lokist jafnvel þó Vegagerðin reyni sitt besta. „Þetta eru 100 km sem þarf að opna héðan og til Hólmavíkur. Svo að ef að snjór er þá snjóum við inni," segir Guðbjörg.
Tengdar fréttir Ernir hyggst hætta áætlunarflugi til minni staða Forsvarsmenn flugfélagsins Ernis stefna á að hætta öllu áætlunarflugi til minni áfangastaða á Íslandi. 31. október 2012 09:53 Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira
Ernir hyggst hætta áætlunarflugi til minni staða Forsvarsmenn flugfélagsins Ernis stefna á að hætta öllu áætlunarflugi til minni áfangastaða á Íslandi. 31. október 2012 09:53