Hættir í bæjarstjórn Árborgar og segir sig úr Sjálfstæðisflokknum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 22. október 2012 14:26 Elfa Dögg Þórðardóttir ætlar að hætta í bæjarstjórn Árborgar.
Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Árborg hefur ákveðið að hætta í bæjarstjórn og segja sig líka úr Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í Árborg. Hún hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna málsins. „Undanfarin ár hef ég unnið af heilum hug í þágu sveitarfélagsins Árborgar og fyrir sveitarfélögin á Suðurlandi sem formaður Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga. Það hefur verið ánægjulegt að koma á fót ýmsum verkefnum í Árborg sem og á Suðurlandi enda eru tækifærin óteljandi og ekki síður skemmtileg. Fátt er jafn gefandi og að koma að verkefnum sem veita íbúum gleði og fylla þá stolti yfir sínu bæjarfélagi og með það að markmiði hef ég reynt að vinna þau verk sem ég hef komið að. Það er hins vegar ljóst að ekki hefur gróið um heilt eftir þann alvarlega trúnaðarbrest sem varð á vordögum varðandi svokallað skólaskrifstofumál og er það mat mitt á stöðu mála að best sé að ég fylgi sannfæringu minni og segi skilið við vettvang stjórnmálanna að sinni. Mun ég í framhaldi af þessari ákvörðun segja mig úr Sjálfstæðisflokknum. Ég óska bæjarstjórn Árborgar velfarnaðar í störfum sínum og alls hins besta til handa íbúum sveitarfélagsins sem og Suðurlands alls".
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Fleiri fréttir Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Sjá meira